daria * blogg hégómans
|
föstudagur, september 26, 2003 ÉG ELSKA TÖLVUNA MÍNA! ... en ég vorkenni Erlingi því tölvan hans er ennþá rándýr ritvél. Og hann er ekki einusinni með Office-pakka. Hahahaha. Við erum akkúrat núna í ensku þar sem ég er í óða önn við að kópíera diska inná tölvuna... yndislega líf og frábæru kerfisstjórar! Vúpps.. tími búinn.. spjalla við ykkur á morgun! |Dagga| 15:12 miðvikudagur, september 24, 2003 Herramannabækur sem ég myndi vilja sjá á prenti: *Herra Hormón *Ungfrú Græðgi *Herra Sóðamunnur *Ungfrú Loðin Ég hef ákveðið að laga til í tenglalistanum. Nýr bloggari verður einnig kynntur til leiks enda er viðkomandi stórvinkona mín. Um er að ræða Ragnheiði Ragnarsdóttur - a.k.a. Ragga sund eða Ragga Centia. Hún ætti að vera fæstum vinum mínum ókunn enda ber hún þann heiður að vera mín elsta vinkona. Hér bloggar hún á rakvel.blogspot.com. Þetta er alveg stórmerkilegt blogg, því hún er hún er gangandi tölublað af Cosmopolitan eða yngri systir Carrie Bradshaw, ef út í það er farið. Lesið þetta bara.... þetta er alveg, sko! Tenglalisti er breyttur að því leyti að ég hef fjarlægt letingjabloggarann Völu Steinsen út af efsta dálki. Nei, það er greinilega ekki nóg að vera best bud. Baldvin grátbað mig um að fá að vera efstur og verður þeirri bón svarað. Ugla fer sömuleiðisúr efsta dálki sökum bloggleti. Sorrí gæs. Síðan hef ég bætt hinum og þessum við.... jájá. |Dagga| 10:52 mánudagur, september 22, 2003 HELVÍTISDJÖ! Þessari snót fannst svar mitt um lögleiðingu kannabisefna ekki nógu sannfærandi í sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins í gær. Ég er alveg sátt, en allir þeir sem hafa farið í blaðaviðtal vita að diktafónninn býr yfir þeim dularfullu hæfileikum að breyta iðulega svörum viðmælandanna. En ég er sosum sátt við þetta svar mitt. Ég er samt svo mikil pjölla að ég hef mun meiri áhyggjur af myndinni af mér sem birtist með svarinu, enda var ég í hvítum vinnustrigaskóm og hægri handleggur minn fór í verkfall. Ekki bætir úr skák að ég lít út fyrir að vera mjög sver við hliðina á 15 ára hvít-tarkbuxnamjónunni sem einnig var innt svara. Pö. Eftir næstum martraðalausa nótt hætti ég mér í óvissuferð í boði Strætisvagna Hafnarfjarðar um 10:15 leytið í morgun. Þegar ég var að gera örlagaríka tilraun til að koma staðalfrávikum og dreifisviðsreglunni inn í hausinn á mér aftast í Dauðavagninum, kom sjálfur Stebbi geit og settist alltof nálægt mér. Ég gat semsagt lítið lært sökum ólyktar og hræðslu. Alltaf verið dauðhrædd við vesalinginn... kallið mig bara smáborgara. Þegar ég mætti upp í Hamrahlíðarskóla klukkan 11 voru þar fáir á ferli og ætlaði ég að undirbúa mig fyrir jógatíma hjá Olgu. Þá sá ég Völu sem var einmitt að koma úr þessum sama tíma og ég átti að vera í. Sumsé, ég hafði skrópað - ómeðvitað. Úje. Ekki bætti úr skák að SAG383 féll niður á þeim tíma sem ég hélt að ég ætti að vera í jóga og er ég því búin í skólanum. Ætti ég ekki að vera ánægð? Jú..... ...en ég þarf að fara í stærðfræðipróf klukkan 15:30. Úje. Á svona dögum langar mig að sparka í sköflunginn á næsta manni. Og Hr. Stærðfræði getur hoppað þangað sem sólin ekki skín. Ég á svo bágt að ég er að deyja. |Dagga| 12:28 |