daria * blogg hégómans
|
föstudagur, janúar 09, 2004 Og bókasafnsdrottning ársins er... ... Ég! Nú sit ég í afgreiðslu bókasafns MH í makindum mínum, bloggandi á geypilega hávært lyklabort sem er að æra alla sem hér sitja. Fokk þet sjit. ótrúlegt en satt þá er ég í ansi góðu skapi á þessum fríska föstudegi. Veit ekki alveg af hverju, það er eins og að dópamínið hafi látið á sér standa í viku eða svo og nú kemur það í öllu sínu veldi. Eða þúveist... Ég verð að fara að temja mér betri svefnvenjur. ég er alveg að leka niður í augnablikinu og get ekki einbeitt mér að lestri. Fór í bókabúð í gær og ekkert til af mínu pensúmi. DRASL. Eiginlega var þessi bókabúðarferð skull, þrátt fyrir fínt föruneyti. Spurning um að nota SparkNotes til svindls í fyrsta skipti á ævinni. Nja... varla. IB-enskufréttir 9.1.04 Jón tilkynnti bekknum að von væri á nýjum bekkjarfélaga. Börnin brugðust vel við þessum fréttum og margar spurningar dundu á kennaranum, þ.á.m. þessi: **Stelpa úr Grafarvogi: Is he, like, American?? Jón: Yes he is. Stelpa úr Grafarvogi: Dude, rock on!! **Stelpa úr Breiðholtinu: Is he cute?? Hahhaa Stelpa úr Grafarvogi: He has, like, gotta be a total hunk, man! Hahhaa Jón: I can´t say, really. .......þessir tímar eru svo absúrd að það væri synd að segja sig úr þeim. Ókei, nú verð ég að fá kaffi. HELVÍTIS LOKAÐA MARARÞARABORG OG HLANDIÐ SEM ÞAR ER BOÐIÐ UPP Á! Fyrirgefðu Skúli, en það þarf eitthvað alvarlegt að fara að gerast í kaffimálum hérna! |Dagga| 12:52 miðvikudagur, janúar 07, 2004 Ég held að ég sé að kvefast.. ...en það er alveg bannað. Kannski að ég biðji mömmu mína um að búa til sterka súpu handa mér eins og þessi hugulsama móðir. Annars er skólinn bara same-old, same-old. Björn Bergs félagsfræðikennari er ekki ljúfur sem lamb en mér líst bara vel á hann, þó karlinn sé illa liðinn af einstaka hríslum. Skólaregla #45: Maður á ekki að vera hræddur við kennarana sína. Hinsvegar er ég ekki frá því að ég hafi fengið vægt menningarsjokk í gær. Þegar ég gekk inn í tíma í IB-ensku í gær leið mér eins og aðskotahlut. Námsefnið er heillandi, en óskaplega fer það í mínar fínustu þegar þessir krakkar tala saman á Alabamamáli. Afhverju eru 17 ára stelpur úr Breiðholtinu knúnar til að hafa samskipti á ensku utan kennslu? Þær um það. Ótrúlegt en satt, þá er móðir mín á leið til Køben, og ég veit ekkert hvað hún á að kaupa fyrir mig! Einhverjar hugmyndir? |Dagga| 13:33 þriðjudagur, janúar 06, 2004 Vei vei skóli á ný Ég er ein af þeim sem unir sér hvergi nema innan veggja menntastofnanna. Að vísu er ég frelsinu fegin þegar kemur að jólafríum auk sumarleyfa, en ómægod.. aldrei er ég jafn frelsuð og á ferskri önn. Öll loforð um betri árangur í námi eru frekar háfleyg ásamt náttúrulega áætlunum um glæstan sigur á sviði bókalesturs. Og þessi önn er engin undantekning. Námið skal massað á þessari síðustu önn í Mikilfengleikanum við Hamrahlíð! Stundataflan mín er ansi fögur eins og gert var ráð fyrir á öndverðri MH-tíð. Síðasta önnin á að vera brill, og hún er brill. Þessa stundina er ég á leið í Lögfræði 103 og þar á eftir í fjögurra eininga IB-enskuáfanga hjá Jóni Hannessyni (ENS4B4). Á morgun fer ég í svo-ofurskítlettta-að-það-er-ekki-fyndið-íslenskuáfangann ÍSL 3T3 hjá Gulla Ástgeirs. Svít. Að ógleymdri Félagsfræði 203 hjá Birni Bergs. Eini skylduáfanginn sem ég á eftir og ekki ætti það nú að verða strembið. Síðan eru áfangar á borð við yndislestur, jóga, kór og að sjálfsögðu útskriftaráfanginn LIL121! Ó hve ég hef beðið þess lengi.. hvíta húfan sést í hillingum handan við hornið. Ég ætla að tilkynna útskrift á mánudaginn og þá verður stuð. Í raun á ég ekki nema 4 einingum ólokið, þannig að ég ætla að reyna að vinna svolítið fram að sumri. Maður þarf nú einusinni að safna fyrir utanlandsferðinni sinni.................. ví. |Dagga| 09:24 |