daria * blogg hégómans
|
föstudagur, febrúar 04, 2005 Ætli ég verði ekki bara að svara hér... Þar sem grein mín á Pólitík púnkti is hefur ollið nokkru fjaðrafoki hjá hinum ó-svo flokksbundna H-lista og ég orðin að einu helsta umræðuefni stofugangshóps þeirra, sé ég mig knúna til að svara spurningunni - „afhverju tókstu greinina í burtu?“ með eftirfarandi hætti: Af virðingu við vinkonu mína, Arndísi Önnu Gunnarsdóttur, 1. sætishafa á lista Háskólalistans og ritara Ungra Jafnaðarmanna hef ég fjarlægt greinina af Pólitík.is að persónulegri beiðni hennar. Er það gott og blessað. Ástæðan var m.a. sú að hún kunni ekki við það (sem Ungur Jafnaðarmaður) að málgagn hennar (pólitík.is) væri notað til áróðurs fyrir Röskvu. Það er ekkert leyndarmál að ég sit í stjórn UJ líkt og Arndís, og taldi ég, þar sem stjórnin virðist klofin í stúdentapólitíkinni, að óhætt væri að birta umrædda grein á umræddri síðu að fengnu leyfi aðstandanda síðunnar. Eftir fremsta megni reyndi ég aðeins að skýra frá sjónarmiðum Röskvu og sleppa skítkasti. Tel ég það hafa gengið eftir. Það hefur oftar en milljón sinnum komið fram að einstaka frambjóðendur Röskvu eru, hvorki meira né minna, sumir tengdir landsstjórnmálum líkt og innan hinna fylkinganna. Og engu minna en H-listinn þar sem þar er flokksbundið fólk úr öllum áttum í áberandi sætum. Það er að okkar mati engin dauðasynd. Áherslan er eftir sem áður að Röskvuliðar standi óháðir í Stúdentaráði og sýni þor og dug þegar kemur að baráttu við stjórnvöld, þrátt fyrir öll pólitísk tengsl. Það er ekki skrýtið að fólk innan ungliðahreyfinga skuli einnig hafa áhuga á stúdentapólitík. Spurningin er, hafa þeir þroska til að aðskilja þetta tvennt, landspólitík og stúdentapólitík í verki? Á það verður að reyna hvað mig varðar, og sver ég hér hnátueið þess efnis að stúdentapólitíkin verður með öllu aðskilin störfum mínum innan UJ. Hvert framhaldið verður á setu minni í SHÍ eða UJ er óráðið. Greinin birtist á pólitík.is, ekki óháður vettvangur sem slíkur, en það er einfaldlega ekkert leyndarmál að ég tengist UJ að e-u leyti. Ég tel mig hinsvegar fullfæra um að aðskilja þetta tvennt, rétt eins og þið, og fer á mínum eigin forsendum í þessa kosningabaráttu, rétt eins og þið. Ég biðst afsökunar á þessari langloku, en ég vona að næstu dagar verði ánægjulegir fyrir alla aðila innan kosningabaráttunnar. Skila góðum kveðjum á herstöðvar H-listans, og vonast eftir heiðarlegu framhaldi á kosningunni. Við í Röskvu munum alla vega gera okkar besta í þeim efnum. (Svar birtist áður sem komment á síðu Óla Gneista Sóleyjarsonar, 3. sætishafa H-listans rétt áðan með viðbætum.) Svona á þetta ekki að vera. |Dagga| 14:30 fimmtudagur, febrúar 03, 2005 Stúdentapólitík - and the battle continues... Er fréttin um slitið samstarf SHÍ og hinna námsmannafylkinga innan lánasjóðsnefndar rógburður og lygi? Sleit SHÍ samstarfinu eða ekki? Þetta leiðréttir málflutning Vökuliða Hið alversta mál. |Dagga| 14:52 miðvikudagur, febrúar 02, 2005 Þúú veist hvað ég meinamær... Oddi er stærsta gat í heimi. Það er ekkert eins hressandi og að byrja morgnana á hreyfingu. Ég tók t.d. upp á því að villast í Högunum í morgun kl. 8:00 og var á vappi um Vesturbæinn í hartnær hálftíma, í ausandi rigningu. Síðan kom Hrafninn og bjargaði mér. Konan í 118 vissi ekki einusinni hvar Hagi er. Hagi Snagi. Henti inn lítilli grein á Pólitíkina í dag. Mér finnst hún skemmtileg. En ekki eins skemmtileg og.. .. RösQuiz á studentakjälleren í kväll. Jeei. Á ensku. Hetja dagsins: Hann Vilhjálmur húsvörður í Aðalbyggingunni. Vænsti maður, það má nú segja. 25 missed calls er heldur ekki slæmur árangur. |Dagga| 14:32 mánudagur, janúar 31, 2005 Dugnaður Guð minn góður! Guðni Ágústsson er sitjandi forsætisráðherra! Herregud! Eins gott líka að ég sé ekki í Kópavogsframsóknarkvennafélaginu Freyju. Afhverju?Afþvíbara. Ég er ekki alveg að fatta þessar 150 bls. sem maður á að lesa fyrir fíluna í dag. Hvað varð um samræminar á einingum? 2,5 einingar og ég les ekki meira en 75 bls. fyrir tímann sem ég mæti hvort eð er ekkert í. Það er ótrúlega gaman að Röskvast. Stofugangurinn okkar fór vel af stað í morgun og gaman gaman þar. Verð að vera dugleg við bloggritun næstu daga, þar sem flæer fer um háskólasvæðið með mynd af kellingunni og vísað á Daríuna. Obbosígaman! X-V! |Dagga| 12:21 |