daria * blogg hégómans
|
föstudagur, mars 11, 2005 Kokkteilhelgi ÞUF, eða Þing Unga Fólksins verður sett um helgina, eða á eftir klukkan tvö. Er því mikið fyrir DH að stússast í dag. En skipulagningin felst aðallega í að klastra saman nokkrum djömmum og matarboði sem engan veginn virðist ætla að passa saman. Það er svo erfitt að vera ég. Plan A er samt að fara í kokkteil 1. árs laganema í ESSO. Á sama tíma mun Björgólfur bjóða í sjúss í Landsbankanum fyrir ÞUF. Ég ætla nú samt að skella mér í ESSO, enda ætlunin að drekka andvirði þess í formi áfengis sem þeir hafa stolið frá mér í formi eldsneytis. Þannig að við gætum búist við því að ég yrði, ja, nokkuð létt um kvöldmatarleytið. |Dagga| 10:07 miðvikudagur, mars 09, 2005 Spurningakeppnir af ýmsu tagi Hef ekkert horft á Gettu Betur í ár. Skammarlegt, og ætla mér að bæta úr því í kvöld. Kannski. En hinsvegar sá ég öðruvísi spurningakeppni um daginn. Á Ómega var einskonar túrnament í gangi þar sem Garðar Cortés spurði unglinga spjörunum úr. Þrír í liði, stigavörður og dómari. Skuggalega líkt GB nema á Ómega eru keppendur ívið yngri og spurningarnar kristilegs eðlis, eins og gefur að skilja. Ennfremur mæta keppendur fyrir hönd kirkjunnar sinnar. Duh. Sama hvað má gagnrýna þessa nauðgun á GB-forminu verð ég bara að gleðjast yfir einu. Stelpur voru hér 100% liðsmanna á báðum sviðum. Bravó Ómega! Ef hugarfarsbreytingin hefst þar, þá er það sosum í lagi. Svo lengi sem það snýst um spurningakeppnir. Áfram Breiðholtskirkja! |Dagga| 10:27 þriðjudagur, mars 08, 2005 Hail to the librarian! Verandi bókavörður emeritus er ég hafin yfir hinn almenna safngest? Afhverju? Jú, ég finn það sem þið hin kunnið ekki einusinni að skrifa inn í Gegnipúnktis! Hæfileikar mínir á sviði Gegnis eru reyndar ekki til að stæra sig af, enda er Bókver svo sannarlega mitt forte. Allt er þó betri en Fengsdraslið. Í bekknum mínum gera samnemendur mínir dauðaleit að grein sem á að lesa í ákveðnum kúrs. Hehehe. Ég veit hvar hún er. Trallalæ. |Dagga| 15:08 mánudagur, mars 07, 2005 Les Choristes Skelltum okkur í bíó í gær. Höfðum hugsað okkur að fara á Ray, en nenntum ekki einhverjum þriggja tíma búgí á sunnudagskvöldi. Því gerðumst við mjög artí og skelltum okkur á hina frönsku Les Choristes. Hún tapaði einmitt óskarnum í flokki erlendra mynda, og fyrir vikið hlaut hún þá að vera skrilljón sinnum betri en Million dollar baby. Sem hún reyndist vera. Þetta segi ég án þess að hafa séð MDB. Þessi mynd var einhver sú albesta sem ég hef séð, lengi! Þegar maður gengur út af svona meistaraverki og horfir síðan til veggspjalda sem auglýsa Hitch, Meet the Fockers, Oceans Twelve eða jafnvel The Aviator þá uppgötvar maður að það er tímaeyðsla að fara á Hollywood myndir í bíó. Tímasóun! Fara og sjá Les Choristes núna! |Dagga| 11:01 |