daria * blogg hégómans
|
laugardagur, mars 26, 2005 Leiðinleg blogg Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst mun skemmtilegra að lesa blogg hjá einhverjum sem mér líkar einstaklega illa við en hjá þeim sem mér þykir vænt um. Að ég tali nú ekki um ef viðkomandi er sérlega illa að máli farinn. Þannig að ef þið eruð að fá massa linkun frá daríunni þá... já. Neei, ég passa mig náttúrulega að veita þeim leiðinlegu sem minnst egóbúst með því að nota síður annarra sem brú yfir í leiðindaheiminn. Ótrúlega eru samt mörg blogg leiðinleg og önnur skemmtileg. Merkilegt, alveg. |Dagga| 12:47 fimmtudagur, mars 24, 2005 Harka og Bobby Fischer Ég er búin að vera að læra síðan klukkan sjö í morgun og er ekki hætt. Þetta er rosalegt. Annars vorkenni ég Bobby Fischer, í alvöru. Og stundum velti ég því fyrir mér hvort Davíð Oddson sé eitthvað sérlega lögfróður, verandi þó cand. jur. Allir sem lært hafa eitthvað í réttarheimildafræði (og t.d. náð sex á almennunni) vita að það er hæpið að slá varnagla fyrir fordæmisgildi eins og háttvirtur utanríkisráðherra gerði á dögunum. Það þýðir að íslensk stjórnvöld ákveða hér með fyrirfram að mál Fischers sé svo einstakt að ekki þyki grundvöllur fyrir að veita öðrum pólitískum föngum hæli á Íslandi á sömu forsendum. Já. Þetta er fokkdöpp. Ég styð komu Fischers heilshugar, í alvöru. En við skulum vona að það opni fyrir gátt pólitískra flóttamanna sem munu beita jafnræðisreglu 65. gr. stjskr. í gríð og erg. En þá með því skilyrði að hægt sé að höfða slík mál fyrir dómstólum. Það ætti sosum að vera hægt, m.t.t. 60. gr. stjskr. og 6. gr. MSE. Spurning með harðsvíraða unglinga frá Úsbekistan sem hyggjast unga út afkvæmum við Sundahöfn. Burt - Burt! segir Frón. Hvað er það sem gerir mál Bobby Fischer sértækt? Skákhæfileikar? Nú veit maður ekki. En eitt er víst að það þarf að gera rassíu í útlendinga- og innflytjendamálum á Íslandi. Fyndnast þykir mér þó að BF hafi ekki fengið að yfirgefa fangelsið í Japan án þess að undirrita plagg er hljóðaði upp á að hann myndi ekki lögsækja japönsk yfirvöld fyrir ólögmætt varðhald. Er það hægt? Ein að farast í raunhæfum verkefnum. Þetta er stuð. |Dagga| 16:21 þriðjudagur, mars 22, 2005 Hvað eru Sjálfstæðismenn í borginni að pæla? Mér finnst öll þessi umræða um ótímabæran gjaldfrjálsan leikskóla RUGL! Ef ég væri borgarstjóri í einn dag væri þetta sennilega það fyrsta sem ég kæmi í verk. Nú er ég m.a.s. ekki stærsti aðdáandi R-listans, síður en svo. En þetta - bravó! Satt best að segja er ég hlynntari gjaldfrjálsum leikskóla en gjaldfrjálsu mastersnámi. Það að fá að fara í leikskóla er bara svo fúndamental atriði, og gerir t.d. einstæðum, atvinnulausum foreldrum loksins kleift að fara út á vinnumarkaðinn, því lágmarkstekjur rétt skrimta þó barnið sé ekki á leikskóla. Þetta verður þá til þess að foreldrar sitja heima með börnin og þiggja atvinnuleysisbætur. Súperb, alveg. Og svo eru Sjálfstæðismenn að kvarta? Ég fæ ekki alveg skilið af hverju. Núna koma þeir fyrst upp um sig; þessi félagshyggjuklúbbur sem Reykjavíkursjálfstæðismenn eru að segja sig vera - ne. Ekki alveg að virka. Ragnheiður Ríkharðsdóttir segist ennfremur vera vonsvikin og þetta setji önnur sveitarfélög í bága samkeppnisstöðu. Sama heyrist úr Kópavoginum góða og Geir Haarde er vonsvikinn eins og Raghneiður í Mosó. Neyðarútspil? Ég segi bara GOTT Á YKKUR! Loksins, loksins getum við stigið eitt skref í áttina að norrænu velferðarkerfi. Ó, ég er svo glöð glöð glöð. Norrænt velferðarkerfi, huh. En ég er samt alveg að flippa á þessum sjálfstæðisflokki. Helvítis hægribylgja. Drepum þessa flugu. |Dagga| 15:20 |