daria * blogg hégómans
|
fimmtudagur, júní 29, 2006 Dægurlestur Það er eins og ég sé að verða vitlausari og smáborgaralegri með hverjum deginum, þá sérstaklega nú yfir síðasta mánuðinn. Ég kenni vinnunni um. Samstarfsfólk er nú ekki afbrigðilega heimskt, allavega ekki svo. Orsakavaldurinn er án efa lesefnið sem er í kaffistofunni. Hér eru engin dagblöð keypt, svo lesefni matartímans samanstendur yfirleitt af einhverju sem starfsmenn koma sjálfir með. Og já - einstaka sinnum birtist Blaðið samdægurs. En í alvöru talað - sá snepill gerir þig bara vitlausari ef eitthvað er. Takmörk eru fyrir því að lesa um að vísindamenn hafi komist að þeirri niðurstöðu að gúrkur séu krabbameinsvaldandi eða úttekt á því hvað fólk notar í staðinn fyrir tannstöngla þegar það er með eitthvða í tönnunum! Og ég verð að hafa eitthvað að lesa á meðan ég borða. Það gengur ekki vel að hafa bækur sér til lesturs í vinnukaffitímum.. fólk fer bara að spyrja um hvað maður sé eiginlega að lesa o.s.frv. og þegar maður er rétt að komast á skrið er maturinn búinn. Svo ég les gömul Blöð og Séð/Heyrt síðan í maí, að ógleymdum Myndböndum mánaðarins síðan í apríl. Það hef ég gert í rúman mánuð núna og er orðin svona nett vitlaus. Því keypti ég mér The Economist í gær og les það yfir ristuðu brauði með marmelaði. Það ætti að endast mér í u.þ.b. viku og þá er um að gera að kaupa næsta blað. Og svo hefur enginn áhuga á að lesa þetta hérna þannig ég hef gengið að því daglega á meðan hinir blaða í Myndböndum mánaðarins og rífast um vikugamalt Hér&Nú. Útlenskt lesefni; alveg málið ef þú vilt eiga eitthvað í friði. |Dagga| 13:25 mánudagur, júní 26, 2006 Grasekkja skrifar Undirrituð sofnaði einsömul í Akurgerðinu í nótt, enda bóndi hennar á erlendri grundu um þessar mundir. Tilgangur þeirrar utanlandsferðar er göfugur; hann sá Depeche Mode í Hyde Park í gærkveldi og síðan verður Bob Dylan barinn augum á tvennum tónleikum, í Cardiff og í Bournemouth. Það er þó ekki laust við að einmanaleikinn láti á sér kræla, en þetta er aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal. Næsta ár verður erfitt. ---- Maður hefur ekki verið alveg nógu duglegur við að kíkja út á land í sumar, og fer hver að verða síðastur til þess. Mínu sumri lýkur töluvert fyrr en ykkar hinna, enda fer ég bráðum að lesa undir ágústpróf - doggamit! En ég kvíði engu/bara smá - og í tilefni þessarar próftarnar ætla ég að leyfa mér langferð á Siglufjörð, nánar tiltekið á Þjóðlagahátíð 2006. ![]() Þar má búast við að sjá þennan hressa mann ---- Annars bráðvantar mig betri eignarréttarglósur. Ást og væntumþykja er minn gjaldmiðill! |Dagga| 13:15 |