daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



laugardagur, apríl 12, 2003  

Fór á Akranes í gær. Missti af Botnleðju, en lít samt svo á að ég hafi elt hljómsveitina um landið og mætt þrjú kvöld í röð á Botnleðjutónleika. Aftur á móti var rokna stuð á Akranesi. Þar tók ég dálítið sérkennilegri áskorun sem fólst í ... já. Ég var mjöööög vel í því...

Þessi áskorun mín í gær var nú bara barnaleikur miðað við frægðarför ýmissa vinkvenna minna á næntísballinu. Anna T , Ragnheiður, Anna Pála og einhverjar fleiri dembdu sér í busastrákakyssukeppnina sem við höfum planað fyrir einhverju síðan. Ósköp er ég fegin að hafa ekki verið með. Stigagjöfin fólst í því að fyrir koss hjá 86 árgangi fékk maður 1 stig og 1/2 fyrir 85 og 1/4 fyrir 84 o.s.frv. 15 fengust fyrir að kyssa forsetann en 2 fyrir stúlkur. Anna Pála vann og fékk 80 og eitthvað stig. Kræst! (SKOÐIÐ MYNDIR HÉR! HAAH!)

Ég er samt svo þreytt. Ég ætla að beila á stórfélagsferð og fara kannski í staðinn á árshátíð með FÍHingum og fleiri tónlistargimpum. Dagurinn var nefnilega ótrúlegur. Í 8 tíma hef ég verið klædd í hanabúning. Af hverju? Nú, ég var að leika í Botnleðjumyndbandinu með Bryndísi Nielsen og Brynju Keflvíkingi. Guðmundur Hörður, you owe us bigtime!
Þetta var samt mergjaðslegt stuð. Við vorum semsagt klæddar í búningana sem þeir notuðu í Júróvisjónforkeppninni um daginn. Og ég var Halli. Bryndís var Belja (Heiðar) og Brynja Kærleiksbjörn (Ragnar). Við vorum The Cow, The Cock And The Couldn´t-Care-Less Bear.

Ferlega gott lag samt. Æ, þið sjáið þetta myndband í næstu viku eða eitthvað. Við vorum samt frekar leiðinlegar við leikstjórann. Hann gat ekki reddað okkur smínku og við vorum eins og úfnir hænurassar í vindi. Hann hafði staðið að Rís auglýsingunni með Birgittu Haukdal (Því þú átt það alltaf skilið!!) og fyrst Ungfrú Júróvisjón gat fengið meiköpp eftir River-rafting og klettaklifur, þá ættum við líka rétt á því. En nei. Þeir fengu ærlega að heyra það í staðinn. En þeir sögðu okkur að það væri að koma risaútgáfa af DRAUM á markaðinn. Ummmmmmmmm... Hann heitir að sjálfsögðu Rosa-Draumur!

|Dagga| 21:32


föstudagur, apríl 11, 2003  

Ég fór ekki á næntísball í gær. Sem er kannski ekki frásögum færandi nema maður líti á þá staðreynd að ég er guðmóðir ballsins. Í staðinnn fór ég á Botnleðjutónleika. Sem er voru grúví en ekki eins grúví og í Keflavíkinni. Því þar fann ég fimmþúsundkall á gólfinu. Guð blessi Keflavík!!

Eftir tónleikana skutlaði ég Botnleðjustrákunum heim og fór með með my UJ posse á Ölstofuna. Þar var rokk. En ekki jafn mikið rokk og .... (wink wink)
Nú segi ég ekki meir. Oj hvað ég þoli ekki svona einkahúmorsblogg.

|Dagga| 12:56


fimmtudagur, apríl 10, 2003  

Ég fór á Botnleðjutónleika í gær. Þeir voru magnaðir og Halli trommari er mitt ídol. Þvílík hetja. Á Lifandi.is getið þið hlustað á nýja lagið þeirra, Ég er frjáls. Fyrirtaks slagari. Hins vegar er ég ekki lengur með hljóðhimnu, enda sat ég fremst í V.I.P. sætunum. Missti sennilega 1% af heyrn minni. Æj.
Ég tók líka fyndið próf:

Germany
Germany -
Despite a controversial recent history, it has had
a tough and powerful history. A modern-day
technological and cultural beacon, it is still
target to stereotypes and antiquited thoughts.


Positives:

Technologically Advanced.

Culturally Admired.

Global Power.


Negatives:

Target of Historical Fervor.

Constant Struggle.

Funny-Looking Ethnic Clothing.



Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla

Reyndar svindlaði ég smá. Ég var nefnilega Sviss; sama hvað ég breytti prófinu mikið. Það er nefnilega ekkert land sem á verr við mig heldur en Sviss. Ábyggilega fyrirtaks land, ekki misskilja, en ég er ekki beint neutral. Þjóðverjar hafa þokkalega sannað sig á undanförnum vikum og eiga gúddvill hjá mér. Deutschland über alles!

Enn bætist í tenglasafn mitt og bý ég Hauk UJ hjartanlega velkominn. Maður ætti að fara að skipuleggja þetta aðeins....

|Dagga| 14:23


miðvikudagur, apríl 09, 2003  

fríða fríða fríða FRÍÐA. Er komin með blogg. Vei. Og ég hef ákveðið að bæta Uglu Egilsdóttur inn á tenglasafnið þrátt fyrir að vera með letingjablogg. Og Kári, bloggaðu eða þú verður hengdur.

Hins vegar verð ég að tjá gleði mína yfir frábæru framtaki skemmtiráðs. Næntísball er á fimmtudaginn og hverjir föttuðu upp á því? Haa? ÉG OG EYÞÓR! Í heilt ár höfum við barist fyrir þessu framtaki og því ætla ég að eigna sjálfri mér þónokkurn heiður af þessu framtaki.

Botnleðja í kvöld í Keflavík. Ég ætla aldrei að byrja á landafræðiritgerð. 2500 orð. Skiladagur: Föstudagur. Umfjöllunarefni: Lettland. Brabb!

|Dagga| 13:54


þriðjudagur, apríl 08, 2003  

En fyndið... mynd af mér í nýju buxunum! En þetta átti nú að vera leynifundur okkar kratagimpanna....

|Dagga| 16:13
 

Vei vei!

Var að koma úr kórferðalagi. Akureyri. Vá ég hef aldrei verið svona rugluð. 5 tímar í rútu með þessum fáráðlingum tekur á. Sögurnar af Siggu litlu fötluðu verða ekki þó endurteknar hér.
Hinsvegar var helvíti gaman. Við heimsóttum t.d. MA og spjölluðum við Gústu. Síðan lá leiðin í VMA (sem er sjálfskipaður vinaskóli MH) og þar fengum við góðan mat en ekki góða áheyrendur. Enda ekki við öðru að búast, skólinn lítur út eins og verksmiðja.

Stupid White Men er besta bók sem ég hef lesið í langan tíma. Ég æpti af reiði í formálanum og æpi enn. Enda hafa allir kórfélagar fengið að finna fyrir formælingum mínum. Ég vil Michael Moore sem forseta BNA. Já!

Svo unnum við bara kosningarnar á föstudaginn var. Þvílík gleði. Leníngrad lifir enn!

|Dagga| 00:16