daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



sunnudagur, apríl 20, 2003  

Vá hvað maður hatar ekki Justin Timberlake!

Gleðilega páska. Páskaeggið mitt er æðislegt. Strumpaegg, að sjálfsögðu. Strumpurinn sá er frekar stressaður á svipinn og heldur bókastafla, auk þess sem hann geymir blýant á bak við eyrað. Mömmu fannst hún vera tilneydd að kaupa eggið, eitthvað fannst henni ég líkjast strumpinum. Ég er ósammála henni. Hefði átt við í 10. bekk eða í fyrra, en ekki núna. Óneeei.

|Dagga| 17:18


föstudagur, apríl 18, 2003  

Já, kórpartíið í gær var bara nokkuð gott. Frekar fámennt en góðmennt. Andri og Högni Egilssynir eru þess verðugir að kallast heiðursbassar.

Atriðin

Já, það verður að teljast til merkilegri tíðinda að sópranar og altar hafi grafið stríðsöxina í gær - í bili allavega. Við tókum okkur saman og gerðum svona Jesú-medley, þar sem slagarar sunnudagsskólanna voru kyrjaðir. Mjög fínt. Tenórar voru einnig magnaðir að vanda - Þeir tóku Eurovísuna á eftirminnilegan hátt. Glæsilegt! (Get ég ekki bloggað án þess að minnast á Botnleðju?)
Hins vegar voru bassarnir ömurlegir. Oj oJ. Það var því ekki neinn sérstakur vinningshafi hvað atriðin varðaði, en vissulega einn lúser.

Í morgun vaknaði ég einhversstaðar í Hafnarfirði og ég var í ruglinu. Alltaf þegar ég vakna á ókunnugum stöðum grípur mig skelfing að morgni til, því ég á það til að gleyma því hvernig ég komst á næturstaðinn. Ég áttaði mig því fljótt á aðstæðum, því Antoine hafði boðið okkur Sigga T og Ásu í eftirpartí. En það tók mig dágóða stund að ná áttum og á ákveðnum tímapunkti var ég var nett skelfd.

En engu að síður - mjög góð kórsamkoma og frábær atriði að bassagimpunum undanskildum - Sveiattan!

|Dagga| 17:33


fimmtudagur, apríl 17, 2003  

Fór á kappræður í gær í Hafnarfirði. Þar voru Kolbrún og Katrín fyrir hönd SF ásamt fulltrúum hinna flokkanna. Á meðal andmælenda var Anna Tryggva og má vel segja að það hafi verið roknastuð á meðal blóðheitra klappliðsmanna.

Fyndnast fannst mér þó að hlusta á mælanda frjálslynda flokksins. Hann sagði í miðri ræðu sinni: ,,Við í Framsóknarflokknum.. nei.. ég meina sko Frjálsynda.." ehehe. Spurningar úr sal urðu sífellt freðnari eftir því sem á leið á opnunartíma barsins og lá við að slagsmál brutust út á milli ónefnds sammara og frjálslyndu sjómannanna. Að kappræðum loknum sáust þeir í faðmlögum á barnum.

Það sem var eiginlega merkilegast við þessar skrautlegu ,,kappræður" var það að ekki einn maður í salnum var óflokksbundinn. Þær voru því vita gagnslausar. En stórskemmtilegar engu að síður.

Kórpartí í kvöld. Jíha. Ég hef á tilfinningunni að þetta verði viðburðarríkt, páskarnir í loftinu og ég veit ekki hvað. Allir léttir á bárunni og ræræræ...

E.S. - Þetta er magnað - svo illkvittið að það er bæði grátlegt og drepfyndið í senn.

|Dagga| 16:19


miðvikudagur, apríl 16, 2003  

Það er eitthvað í loftinu. Mig langar að gera allt annað en það sem ég ætti að vera að gera. Eins og að skrifa grein um menntamál, landafræðiritgerðin víðfræga ( 2 mánuðir - komin með HÁLFA BLAÐSÍÐU) og loks latínuyfirlestur. En nei. Í staðinn er ég í tjúllinu að lesa bók eða dreifa bæklingum í nóatúni.

Sumum finnst ég blogga of lítið um pólitík. Sem mér finnst absúrd því hver vill lesa um pólitík á þessum tímum? Þú þarft ekki að gera annað en fara út að kaupa snúð og þá eru útsendarar hins illa mættir til að klófesta atkvæði þitt. Pólitík smólitík. Mér finnst hún heví skemmtileg en ég er líka flying-kerazy.

Já svo fór ég í viðtal .. fuss.

|Dagga| 15:21


þriðjudagur, apríl 15, 2003  

Nú á stelpan grein á politik.is!! Endilega tékkið á henni.

Minni alla á Lifandi.is - geysigóður afþreyingarvefur og djammyndir af mér. úha.

|Dagga| 20:04


mánudagur, apríl 14, 2003  

Vá! Ekki hefði ég nokkurn tímann búist við sjálfri DROTTNINGUNNI!

HarleyGuiding
Harley Cooper: Þú ert uppreisnarseggur og
villingur! Skírð eftir Harley Davidson
mótorhjóli, fylgir engum reglum og gerir það
sem þu vilt. Þín veika hlið tengist karlamálum,
þú hefur gifst nokkrum sinnum vegna ástar en
það hefur aldrei gengið upp. Þú ert hins
vegar mjög skotin i nuverandi kærasta thinum,
hann er lögga alveg eins og þú. Vonandi bara
að hann fái aftur tilfinningu í lappirnar eftir
sprenginguna...


Hvada Leidarljos karakter ertu?
brought to you by Quizilla

Magnað! En það er alveg komið á hreint; mér er það líffræðilega ómögulegt að djamma 3 kvöld í röð.

Mig dreymdi nefnilega að ég væri að spila brids við Magnús Scheving og St.Bernarðshund. Sem er fáránlegt - allir vita að þarf fjóra í brids!!

|Dagga| 16:27