daria * blogg hégómans
|
sunnudagur, júní 01, 2003 Einbúablogg Er búin að vera ein heima í nokkra klukkutíma og það er komið á hreint; ég er að fara að flytja að heiman! Hvílík nautn! Mamma er ágæt, en fokk sjitt fokk þetta er ljúft. Að því tilefni vil ég biðja fólk um að mæta óumbeðið heim til mín eftir klukkan 5 og skemmta mér. Vaknaði með þetta lag á heilanum: Fyrst á röngunni og svo á réttunni Tjú tjú og trallala .........Þetta hættir ekki! |Dagga| 21:42 föstudagur, maí 30, 2003 Vó sjitt. Ekki búin að blogga geðveikt lengi. Ojæja, þið lifið það af, elskurnar. Vorvítamín Kórinn hélt árlegt vítamín í dag og það heppnaðist só-só. Ég hafði stundað óheilbrigt líferni kvöldið áður og ekki kannski í besta formi, en alveg laus við timburmenn enda var ég bláedrú. Ég er ekki alveg, sko. Ég held að mamma hafi aldrei skammast sín jafn mikið fyrir mig og þegar ég og Halli tókum létta sveiflu í Búðarvísunni. And I don´t blame her. Við erum búin að gera þetta svo oft oft oft að við erum hætt að átta okkur á absúrdleika þessa heldur-kjánalega atriðis. Nema þegar við stöndum á sviðinu og ég er að rembast við að vera uppnumin af ánægju yfir þessum forláta silkiklút! Oh... Þetta er svo mikil ,,Tilgerðar"-vitleysa að annað hefur nú ekki sést í langan tíma. (Nema þegar Sigríður Ása og Högni voru látin reika ástfangin um gólf í Salley Gardens.. geez). Síðan var líka kannski svolítið yfirdrifið að fá skrilljón ,,Tröll" upp á svið í 3 lög. En þetta var nú samt ágætt gigg. Eftir tónleikana var mál að þjóta í spákonumúnderingu og spá í framtíð tónleikagesta ásamt Uglu Egilsdóttur. Þar mætti ein rithöfunda bókmenntameistaraverksins Dísar og vildi láta spá fyrir sér. Þar sem ég gerist sek um að lesa sunnudagspistla hennar í Mogganum öðru hverju var spá mín nokkuð trúverðug. Annað mátti þó segja um tilþrifin sem við vorum með í spánni hjá 9 ára hægrisinnaðri stelpu. Sú fékk það óþvegið. Héhé. Mamma og Steinunn eru í óða önn við að láta í töskur vegna fyrirhugaðrar Parísarferðar. Partí Partí Partístuð alla daga og allar nætur í Goldenclover numero cinco in die Kopevogen! Mig langar í skrilljón útilegur í sumar og éld ég vinni bara aldrei um helgar. Og! Mig langar í kisu. :( Tónlist: Breeders - Cannonball Lesefni: Jón Baldvin - Tilhugalíf. |Dagga| 00:44 mánudagur, maí 26, 2003 Ég var að skoða nýju bókina hans Jamie Oliver í vinnunni í dag. Þar var hann að ráðleggja fólki við val á hráefnum ýmiskonar og meðhöndlun þeirra. Allt gott og blessað við það, en ég get ekki verið annað en döpur þegar ég skoða myndirnar af grænmetismörkuðunum og ostabúðunum sem enginn Kópavogsstúlka getur heimsótt án fyrirhafnar. Ókei, ég er með Nóatún og Hagkaup í Smáralind í 100 metra fjarlægð, en mig langar að kaupa þetta helvítis pancetta sem hann er alltaf að væla um, eða 15 tegundir af tómötum! Þess vegna ætla ég að búa í London. Ég meina það! Og allir eiga að taka Hvítasunnuhelgina frá, því þá býð ég öllum í mat! (7.-8. júní) ...svo er hann Jamie líka svo ógeeeðslega sætur! Blogger er í vondum málum, því ekki vill hann leyfa mér að laga til hérna. Sorrí þið sem bíðið eftir hlekk, hann kemur á endanum. Annars var helgin ágæt. Stúdentaútskrift var vegleg á laugardeginum en ég nennti þó aðeins í eina stúdentsveislu, eða til Önnu Pálu. Þar héldum við Anna T og Ugla upp stuðinu með gjörningum ýmiskonar, og komu þá Nallinn og sápukúlur m.a. við sögu. Síðan kíktum við í Júróvisjónpartí til Viggu á Glaumbar um kvöldið og upplifðum ógeðslega spennandi stigagjöf. Þá tók við eitthvað klassískt skrall með hinum og þessum; og loks staulaðist ég heim um þrjúleytið þegar Dillon lokaði. Það er ekki beint gott að búa í Kópavogi. Ekki alslæmt þó, en gallarnir geta verið stórir. Það alversta ver þó að koma sér heim um helgar. Venjulega lendi ég í því að þurfa að taka leigara einsömul, því ég tími oftar en ekki að fara heim þegar farið býðst. Óskynsöm get ég verið. Þetta getur verið æði kostnaðarsamt og hef ég þessvegna vanið mig á að labba upp á Select í Öskjuhlíðinni og hringja þaðan á bíl. Kostar mig venjulega um 1300 krónur og er það bara vel sloppið. Ekki myndi það samt skemma fyrir að eiga sér djammfélaga í næsta húsi. Spurning um að endurnýja kynnin við krakkana í Smáraskóla. ...... NOT!!! (hrollur) |Dagga| 22:50 Eruð þið svona mikil fífl eða ég svona góður lygari? Ófáir hafa komið að mér og samglaðst mér yfir módeláformum mínum. Línur eins og ,,Ég frétti að þú værir að fara að vinna í Asíu?" eða ,,Dagga! Ég vissi ekki að þú værir fyrirsæta!" Fyrir þá sem ekki vita hvernig ég lít út, er þetta mjög fyndið. Ég er 164 og eflaust þyngri en tveggja metra súpermódel. ..En maður veit ekki hvernig standardinn er á Filippseyjum! Það er þó engin lygi að ég skuli vera á leið þangað. Með kórnum í lok ágúst. Býst við að þetta sé skref í áttina að óstöðvandi heimshornaflakki mínu; enda ætla ég mér að stíga fæti á allar 7 heimsálfur! Líka Antartíku! Ég komst að því um daginn að mig langar til að gera eftirtalda hluti: 1) Diplómat... ...með leyniskjöl í skjalatöskunni, ekki þó beint fyrir íslenska utanríkisráðuneytið. Alltaf í dýrum drögtum og með sambönd ALLSSTAÐAR, sérstaklega innan Boston-mafíunnar. Helst á drápslista í Miðausturlöndum. 2. Stríðsfréttamaður Veit ekki afhverju. Örugglega eitt hættulegasta starf í heimi, en ótrúlega heillandi og spennó að vera þarna í ,,eldlínunni".... "This is Daggie Heikonardottir for CNN, live from Kuwait" Úje. 3. Fóstra. NOT! Fleiri linkar væntanlegir á næstunni. Until then.. ciao! |Dagga| 01:58 |