daria * blogg hégómans
|
laugardagur, ágúst 30, 2003 Man ég man þig Ætli íslenska geitungastofninum sé eitthvað að fara aftur? Maður er ekkert hræddur við þetta lengur, það er svo auðvelt að kremja þá í rólegheitunum. Fyndin stafsetningarvilla í Fréttablaðinu í dag. Salóme Þorkelsdóttir vill helst ekki missa af Gísla Marteini á laugardagskvöldum en eldar þó eitthvað gott og bíður stundum í mat. Ég var að sjá Botnleðjumyndbandið í fyrsta skiptið áðan. Svolítið undarlegt, en lúkkar vel. Samt óþolandi að horfa á Popptíví þegar myndin er bara pínulítil uppi í vinstra horninu og þar að auki umkringd einhverju kjeeftæði. Er fólk sem birtist í Séð og heyrt alltaf frá Akranesi eða Selfossi? Núna er daggan líklega komin til Kualalalalu......Frakklands. Ýkt gaman. |Dagga| 12:40 föstudagur, ágúst 29, 2003 Valdarán Þar sem Dagbjört Hákonardóttir verður fjarverandi til 10. september mun staðgengill hennar blogga á þessari síðu þangað til. Þeir sem lesa þetta blogg eingöngu vegna áhuga síns á höfundi þess fá því fremur lítið fyrir sinn snúð næstu daga, og ættu að snúa sér annað. Þeir sem hafa hins vegar áhuga á almennri bókmenntafræði og sögu bókmenntategundarinnar bloggs ættu hins vegar að fylgjast vel með, því eins og allir vita er það hefðin, en ekki höfundurinn, sem er málið. Dagskráin næstu daga er mjög fjölbreytt. Af atburðum sem munu eiga sér stað næstu daga má nefna lag dagsins, maður dagsins, getraun dagsins, spurt og svarað, stjörnuspáin og niðurstaðan úr „Hvaða-ávöxtur-ert-þú?“-prófinu. Athugið að þótt undir öllum færslum standi „Dagga besservisseraðist smá“ er það ekki hún sem ritar (nema það sé tekið sérstaklega fram) fram til 10. september, eins og áður segir. Ástæðan fyrir þessari misvísun er reynsluleysi staðgengilsins við að blogga - hann kann nefnilega ekki að breyta þessari undirskrift. Nú væri auðvitað mjög sniðugt að koma með getraun dagsins sem væri: Hver er staðgengillinn? En það er auðvitað mesta klisja í heimi, og við verðum að passa okkur á klisjunum. Býst auk þess við því að flestir fatti það strax. Þeir sem fatta það ekki eru bara ýkt óheppnir. |Dagga| 13:15 fimmtudagur, ágúst 28, 2003 Filippseyjar Nú verð ég að drífa mig til eyjanna er kenndar eru við Filippus. Ég vona að ég komist í tölvu þarna úti en það þykir mér þó ólíklegt. Við sjáumst þá bara... kem aftur þann 9. september! |Dagga| 17:58 miðvikudagur, ágúst 27, 2003 Tónleikar í kvöld klukkan 20:30 í Háteigskirkju Hamrahlíðarkórinn kemur til með að halda glæsilega tónleika í Háteigskirkju eftir kvöldmat. Prógrammið er glæsilegt og að sjálfsögðu kostar ekki baun inn. Í gærkveldi skellti ég mér hins vegar á Fú Fæters ásamt Völu og skemmti mér bara vel. Aldrei hatar maður að synda í svita 100 táningspilta og troðast undir, eða jafnvel missa tær ef út í það er farið. En þetta var hörkustuð, þó maður hefði kannski verið í meira stuði hefði maður verið fimmtán. Annars er ég í tómu tjóni við að pakka saman í tösku fyrir Filippseyjaferðina. Ég er að deyja úr æsingi. Ég hef m.a.s. látið kapítalismann náð tökum á mér, því nú er ég orðinn stoltur handhafi kreditkorts. Oj mér. Ó, öll sú gnægð af sjtti sem ég mun kaupa........ |Dagga| 11:36 þriðjudagur, ágúst 26, 2003 Annríkiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Bloggfærslur mínar hafa ekki verið í líkingu við fyrri skrif mín og biðst ég forláts. Eða þannig. Ég stend þessa dagana í gífurlegu basli við að klára mín skylduverk áður en til útlanda er haldið. Þá eru vandamál þess efnis helst tengd skólanum og kennarar mis-viðdílanlegir. Flestir eru þó bestu skinn. Aftur á móti eru kóræfingar upp á hvern einasta dag og í gær sló mér niður um eftirmiðdaginn og fékk vægt hitakast. Meikaði ekki æfingu og lá heima í rúminu. Ég ætla ekki veik til útlanda... það er klárt mál. Síðan eru það fú fæters í kvöld með Völu og tilhlökkun mikil. Ekki að ég haldi mikið upp á þá í dag, heldur var mín heitasta ósk í 10. bekk að berja Dave Grohl augum. Hins vegar grunar mig að ég þurfi að eyða kvöldinu á kóræfingu. ÓVEI! Glöggir menn taka e.t.v. eftir því að ég skrifa ekki grein á pólitíkina í dag. Fyrir því eru ýmsar ástæður sem ég ætla ekki að láta uppi á veraldarvefnum. Stundum er ég nefnilega óþægilega hlýðin. |Dagga| 02:44 sunnudagur, ágúst 24, 2003 LÍK 6314. Jóga. Ég þarf að fórna langþráðum jógatímum fyrir ritlistaráfangann - ÍSL3636. Hversu lengi hef ég nú beðið eftir að klára þessar djöfulsins 6 einingar í leikfimi til þess að fá tjilltíma dauðans inn í töflu? Ég gæti náttúrulega hent þremur íslenskueiningum út um gluggann... þær eru nú eiginlega óþarfar. En nei, metnaðurinn er í hámarki þessa dagana og ambisjónir annarinnar eru vægast sagt háfleygar. Djöfulsins áfangakerfi. Dem jú. |Dagga| 17:00 |