daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



sunnudagur, september 21, 2003  

Mér finnst ferlega ömó að:

*...vera með "sár" á neðri vörinni
*...hafa fengið ömurlegar martraðir í alla nótt
*...þurfa að fara í stærðfræðipróf á morgun
*...vera í vinnunni
*...ég geti ekki hugsað mér að lesa neitt annað í augnablikinu nema InStyle
*...vera atvinnulaus allan októbermánuð
*...vera með magakveisu dauðans
*...vera skólaus aumingi
*...að eiga enga ömmutösku lengur
*...vera gráðug
*...ljósmyndarinn skuli hafa sýnt helvítis skóna mína þrátt fyrir grátbænir mínar um skólausa mynd
*...ég geti ekki komið &%&%#$# Filippseyjamyndunum inn... því Yahoo er með fökkíngs stæla
*...vera dálítið stúrin og ringluð í augnablikinu

En það er ferlega nett að:

*...... eiga einhvern að.

|Dagga| 15:55


föstudagur, september 19, 2003  

Ég er andskotans aumingjabloggari


Ég kenni netlausri tölvunni um. Og Hjalta, enda hefur hann dregið andleysið fram í sólarljósið, vegna þess að hann er einfaldlega miklu betri bloggari en ég. Darian verður aldrei söm. Ég kenni ferskleika hans um.. en það er engin afsökun, ég veit ég veit.

Af iðjuleysingjum
Skólinn er að taka á sig venjulega mynd og letilíf sumarsins víðsfjarri. Það er eiginlega bara gott. Ég fíla mig miklu betur þegar ég hef nóg fyrir stafni og þá sérstaklega á haustin. Sumarfríið er ágætt en það drukknar eiginlega bara í vinnu. Haustin eru nefnilega uppfull af lífi og breytingum í lífi ódællar skólastúlku.

Til dæmis var mikið um dýrðir við skrifstofudyr Hamrahlíðarskóla fyrir rétt tæplega stundarfjórðungi. Þar hékk fróðlegur listi sem á voru rituð nöfn þeirra sem stóðust inntökupróf Kórs MH. M.a. komust inn Erlingur Óttar Thoroddsen í Tenórinn og Anna Finnbogadóttir í Sópranamafíuna og óska ég þeim innilega til hammó með þennan merka árangur. Inntökupróf þessi eru ekkert grín.

Af kórstarfi er það annars að frétta að undirrituð mun neyðast til að spila þverflautupartinn í Snert hörpu mína himinborna dís í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar. Það er ekki töff, sérstaklega í ljósi þess að ég er ennþá með taugaskaðann í litla fingri (blessuð strætóhurðin) og einnig vegna yfirgengilegrar vanrækslu á þverflautunni sjálfri. Ég býst við að ég sé ekkert sérlega mikill músíkant eftir allt saman.

MYNDIRMYNDIRMYNDIR
Minni síðan mannskapinn á myndirnar frá Filippseyjum sem koma inn á morgun eða hinn. Sinn. Minn.

haha.

|Dagga| 13:15


miðvikudagur, september 17, 2003  

Nýja tryllitækið mitt....

Ég var kannski ekki búin að segja ykkur frá nýju tölvunni minni. Hún lítur svona út. Ég elska hana ofurheitt og get vart án hennar verið. Hún getur spilað DVD, skrifað diska, blastað á við bestu græjur og auðvelt er að koma henni ofan í sérstakan bakpoka þannig að ég ferðast með hana út um allan bæ. Þyrfti þó helst að gera svona eina eða tvær bakæfingar. Ég er semsagt í gúddí hvað tölvumál varðar. Takk pabbi minn.

(Þið vitið að ég mun kýla einhvern heyri ég orðið Pabbastelpa frá öfundssjúkum...)

En hvers virði er tölva þegar hún getur ekki nettengst? Það er nefnilega spurning. Í marga daga hef ég mætt með tölvuna í skólann (15 mínútna strætóferð með þetta á bakinu...úff...). Í augnablikinu gagnasthún mér lítið sem ekkert, nema kannski til að drýgja tímann í Pinball í miður skemmtilegum efnafræðitímum. Þegar á heildina er litið er kostagripurinn mikli í raun fátt annað en dýr ritvél. (Þó ekki, því ég get ekki registerað Office-pakkann netlaus og þ.a.l. get ég lítið skrifað.)

Og á ég þó netkortið. Keypt var eitthvað kort að nafni LINKSYS sem ku vera drasl. Kerfisstjóri hefur reynt af öllum mætti en allt virðist ganga á afturfótunum.

Því spyr ég: Vill einhver koma með mér í Pennann á næstu dögum; ekki væri verra að hafa með sér eins og eitt kúbein.

Hvað segiði?

|Dagga| 08:46


þriðjudagur, september 16, 2003  

Greinardagur

Jæja, nú er loksins komið að því. Ég á grein á Pólitík. Hvílík endemis gleði.

Annars er annríki mitt farið að nálgast hættulegt stig. Mig langar í snúrurnar mínar til að geta sett myndirnar frá F. inn. Mig langar til að það sé til mjólk heima. Afhverju er ekki netkortið mitt að virka?

Ó ég er svo skemmtileg.....

|Dagga| 10:36