daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



föstudagur, október 17, 2003  

LOKSINS LOKSINS! 100-listinn minn!

Ég var að rúnta um nokkur blogg um daginn og komst að því að ætli ég að halda áfram ofurbloggmennsku minni yrði ég að gera svona lista. Hann var gerður á hálftíma á þjóðarbókhlöðunni í gærkveldi. Svona er ég nú dugleg....


1. Ég heiti Dagbjört Hákonardóttir og bý Kópavogi
2. Ég bý í laxableikri blokk við hliðina á Smáralind
3. Ég er 19 ára og fædd á því herrans ári 1984
4. Ég er í Menntaskólanum við Hamrahlíð og klára í vor
5. Ég sit í Norðurkjallara
6. Eftir MH ætla ég í lögfræði
7. ...en stefni samt á að verða lögfræðingur litla mannsins
8. Ég hef alltaf búið í Kópavogi, alls þremur mismunandi hverfum
9. Fyrir utan eitt ár í Danmörku þegar ég var sjö ára
10. Mamma mín heitir Kata
11. Ég á eina yngri alsystur og tvo tvíburahálfbræður
12. Elskhugi minn heitir Hjalti Snær Ægisson
13. Ég hef aldrei átt gæludýr, að frátöldum gullfiski systur minnar
14. En mamma drap hann óvart
15. Mig langar í kisu
16. Ég hef verið bloggari síðan sumarið 2002
17. En hóf ekki ofurbloggun fyrr en í byrjun 2003
18. Mamma mín heldur að ég gífurlegur tölvusnillingur og eigi framtíð fyrir mér innan tölvufræða
19. Ég leyfi henni að halda það
20. Frægasti maður sem ég hef talað við er án efa Damon Albarn.
21. Það er mjög ómerkilegt í sjálfu sér
22. Mamma hefur hinsvegar hitt Eric Cantona
23. Mig langar mest til að spjalla við George W. Bush eða Yoko Ono
24. Sumir segja að ég líkist Audrey Hepburn eða Winonu Ryder
25. Það er rugl. Ég vil líkjast Dolly Parton
26. Uppáhalds kvikmyndin mín er m.a. The Royal Tenenbaums
27. Ég elska Spilverk Þjóðanna, og Bítlana.
28. Tónlistarsmekkur minn er óaðfinnanlegur
29. Ég er alger subba
30. Ég er líka löt
31. Ég er mjöööööööög óstundvís og sein
32. Þó ekki jafn sein og mamma eða Anna Pála
33. Ég kann á þverflautu
34. Ég er í MH kórnum og er sópran
35. Sumir segja að ég sé Alt-karakter
36. Ég er þeim hjartanlega ósammála
37. Ég hef farið til Skotlands og Filippseyja með kórnum
38. Annars hef ég komið til Danmerkur, Svíþjóðar, Englands, Póllands, Bandaríkjanna, Kanada, Austurríkis, Þýskalands, Ítalíu, Spánar, Portúgal og Malasíu
39. Mér finnst afspyrnu leiðinlegt í flugvél
40. Mér finnst Ísland besta land í heimi
41. Ég er alger antísportisti
42. Var þó mjög hæfileikarík ballerína sem barn
43. Ég er stundum að fikta við pólitík
44. Ég trúi því ennþá að bangsar og dúkkur lifni við á nóttunni
45. Ég er gjaldkeri Ungra Jafnaðarmanna, og er því í framkvæmdastjórn
46. Ég kann ekki á bókhald
47. Ef það væri til formlegur aðdáendaklúbbur Ingibjargar Sólrúnar væri ég í honum.
48. Annað má þó segja um manninn með slaufuna (hóst)
49. Ég ætla ekki á þing
50. Uppáhaldsmaturinn minn er brauð með osti
51. En ég kann alveg að gera gott risotto
52. Ég á fína fartölvu
53. Mér finnst óþægilegt að ganga í buxum
54. Enda er ég yfirleitt í pilsum
55. Mér finnst ekkert sérlega gaman að hanga á kaffihúsum
56. ..nema þegar það er eitthvað mönts í gangi eða skemmtilegur sessunautur á staðnum
57. Mér finnst hinsvegar ógeðslega gaman að fara i bíó
58. Ég á 56k internettengingu því móðir mín skilur ekki tölvur og er borgunarmanneskjan á heimilinu
59. Ég nota skóstærð númer 35 og hálft
60. Ég er 164 cm
61. Mér finnst fátt skemmtilegra en að fara í útilegu eða sumarbústað með skemmtilegu fólki
62. Þegar ég verð gömul ætla ég ekki að gera neitt nema spila bridds
63. Ef ég ætti dóttur héti hún Gvendólína; ég myndi samt kalla hana Línu
64. Ég er stundum í Fréttablaðinu um helgar að tala skít
65. Ég er frekar nærsýn
66. Ég á flott kisugleraugu en nota eiginlega alltaf linsur
67. Mér finnst gott að hanga í heitum potti
68. Einusinni leið næstum yfir mig í Kópavogslaug
69. Ég hef handleggsbrotnað í strætó
70. Ég hef líka brákað á mér handlegginn þegar ég var að horfa á úrslitaviðureign spurningakeppni framhaldsskólanna árið 1989
71. Í 9. bekk var ég gagntekin af Friends
72. Það komst á hættulegt stig
73. Ég er ennþá að jafna mig, en er þó manna fróðust um þessa þætti
74. Ég veit að það er asnalegt
75. Mér finnst silfrað Extra best
76. Ég fæ grænar bólur ef ég hlusta á söngkonuna Anastaciu
77. Ég naga á mér neglurnar
78. Ég reyndi einusinni að stofna hljómsveit sem hét Skúffukaka
79. Mér er það líffræðilega ómögulegt að spila á gítar, trommur eða píanó
80. Einusinni vann ég söngkeppni Smáraskóla
81. Ég vil kalla mig femínista
82. Ég á grænt Baby-G tölvuúr
83. Mér alltaf kalt á puttunum
84. Ég drekk frekar kók en pefsí
85. Ég brýt allar siðferðilegar reglur sem mér eru settar
86. Stundum sé ég eftir því, yfirleitt samt ekki
87. Ég safna uglum og ljótum skóm
88. Ég vinn á Bókasafni Kópavogs
89. Það er ágætis vinna
90. Ég vil að Ísland gangi inn í Evrópusambandið
91. Mér finnst bleik lakkrísrúlla betri en gul
92. Það tekur mig u.þ.b. 24 sekúndur að borða slíka í einum munnbita
93. Það er Mararþaraborgarmet í kvennaflokki
94. Ég trúi á framhaldslíf
95. Ég var ábyggilega gyðingur í fyrra lífi
96. Eða kisa
97. Ég borða ekki banana
98. Ég er mesta svefnpurka í heimi
99. Ég kem aldrei neinu í verk
100. Nema þá egósentrískum hlutum eins og þessum lista....

|Dagga| 16:02


þriðjudagur, október 14, 2003  

Líðan í dag er afspyrnu slæm.

Ég er reyndar laus við allan hita sem eitthvað var að láta á sér kræla í gær en ónæmiskerfið er samt sem áður að bregðast mér. Til dæmis er ég búin að fá hálsbólgu dauðans og svakalegan varaherpes. Ekki dónalegan herpes, þó, sem betur fer! Þannig hef ég aldrei fengið.

Frunsan er þó óðum að hverfa og röddin mín líka. Bráðum þarf ég að láta bora gat á hálsinn á mér og fá svona raddgervil. Tja, maður gæti allteins farið á Reykjalund eða Vífilsstaði! Miðað við hvernig ég hljóma í dag ætla ég að láta alla munnlega tjáningu vera í dag. Svei já.

Senn koma jólin og ekkert hefur heyrst frá Holtagörðum í ár. Hvað er eiginlega í gangi.. komið langt fram í október! Ég veit ekki hvað kaupmenn landsins eru að pæla. Allavega er ég byrjuð á piparkökuhúsinu!

|Dagga| 14:34


sunnudagur, október 12, 2003  

Dagurinn í gær var massaður....

...þó ég hafi alls ekki horft á leikinn. Pö nei. Hjalti varð nefnilega 22 ára í gær og þá lá beint við að gera eitthvað skemmtilegt. Ég byrjaði á því að gefa honum afmælisgjöf sem samanstóð af tveimur bókum - þessari og þessari. Síðari bókin er skyldueign fyrir allar guðlegar verur!

Um hádegisbil lögðum við af stað í fjallgöngu dauðans. Keyrt var í botn Hvalfjarðar þar sem við gengum nálægt Hvalfelli, en það viðraði ekki of vel til súperfjallgöngu þannig að við létum okkur nægja að ganga upp með Botnsá þar sem Glymur fellur. Gaman að sjá hæsta foss landsins í nærmynd og haustlitirnir eru æðislegir. Svo er líka gott að fá sér heitt kakó og snúð í óbyggðum.

Um kvöldið var farið á magnaða tónleika á Kúltúre með hetjugítarleikaranum Sigga og hljómsveit hans. Þar gat maður smellt kossi á kinnar vinkvennanna Söndru og Viggu.

Og mikið lifandis ósköp er gott að eyða sunnudegi í þynnku og volæði...

|Dagga| 16:52