daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



laugardagur, nóvember 01, 2003  

Arg, nú beit ég í tunguna

Ekki ýkja skemmtilegt það. Mjög sárt.

Mikið er ég samt fegin því að það sé ekki Hrekkjavökuþema í kórpartíinu.

Einnig gleðst ég yfir því að ég bý í landi þar sem maður má fara í eins langar sturtur og manni sýnist.

Gleðilegast þykir mér þó að tilnefna Verstu Bloggara Októbermánaðar. Verðlaunin hljóta Erlingur Óttar Thoroddsen og Baldvin Kári Sveinbjörnsson. Huuundleiðinleg blogg, bæði tvö. Hver les kvikmyndagagnrýni einhverra smástráka á netinu? Ekki ég, þó þeir séu vinir mínir. Spurning um að henda þeim úr Efsta Dálki.

|Dagga| 01:04


föstudagur, október 31, 2003  

Gott þetta!!

Þetta þykir mér sniðugt.

Annars veit ég ekki aaaalveg hvort ég geti farið landsþing um helgina. Ástæður fyrir því eru m.a. þessar:

*Ég þarf að leika í stuttmynd. Ég þarf.
*Ef ekki væri stuttmyndagerð til staðar þá myndi ég vinna alla helgina vegna þess að ég er fátæk
*Ef ég fengi ekki vakt myndi ég byrja að læra fyrir prófin og klára tilfallandi verkefni sem hrannast upp. Veitir ekki af.
*En lærdómsgyðjan er í vetrarfríi um þessar mundir, og myndi ég þá sennilega bara skúra sameignina fyrir mömmu. Maður verður nefnilega að vera góð(ur) við mömmu sína.

Hinsvegar get ég sagt ykkur það að ég dirfist varla að mæta. E.t.v. má segja að ég sjálf sé jafnslæm ÖS þegar kemur að hvassyrtum ummælum margskonar og óviðeigandi greinaskrifum. Já, ég viðurkenni að ég átti kannski ekki að fara með skoðanir mínar á vefinn. Þegar vitnað er í mann í Staksteinum Morgunblaðsins hlýtur eitthvað að vera að. Annars finnst mér persónulega ekkert að þessari grein minni fyrir utan kannski óviðeigandi ummæli um háttvirtan formanninn. Þau voru bara skrifuð í hita leiksins, þótt mörgum þyki það ekki vera góð afsökun.

Ég fer samt ekkert ofan af því að ég meinti (næstum) hvert orð og eftirsjá er ekki ýkja mikil. Ég blæs á öll ummæli um slæma tímasetningu vegna komandi landsfundar því allir verða að geta tekið harðyrtri gagnrýni, hvort sem það er ég eða Össur Skarphéðinsson.

|Dagga| 11:58


miðvikudagur, október 29, 2003  

Ég á að erfa landið...

Ég er ein(n) þeim sem eiga að erfa landið
ef eitthvað verður eftir handa mér
þú þarft svosem ekki að verða hissa
ef ekkert verði heldur handa þér

Eða ertu
ánægður með það?

Þjóðfélagið gerir okkur vitlaus
svo eigum við bara að vera þæg og góð
og ef við gerum ekki eins og hinir
þá erum við annaðhvort skrýtin eða óð

Eða ertu
ánægður með það?

úhúhúúú....

hei

Hverju eigum við eiginlega að trúa
við heyrum svo margt, bæði hvítt og svart
hvern fjandann á ég eiginlega að gera
dansa með, eða fara í hart

Eða ertu
ánægður með það?


Svona er að vera með Spilverkslög á heilanum. Einbjörn kallinn... hann rúlar sannarlega.

|Dagga| 13:06


þriðjudagur, október 28, 2003  

Grein á tíkinni póli.

Ekki þó Tíkinni.is - Óneee. Bara á Pólitík.is og greinin illgjörn. Ég minni enn og aftur á aðdáendaklúbb Ingibjargar Sólrúnar! Á þessum tímapunkti er ég ein í honum, en ég ætti að geta safnað svona 50 í viðbót um helgina. Jájá. Fleiri kæmu e.t.v. í hið ofur-illbeitta félag sem kennir sig við skammstöfunina VÞEÖS!

...getið í eyðurnar....

E.S.
Sandra! Ég var að fá ömurlega hugmynd að nýrri þemaviku!

|Dagga| 01:08