daria * blogg hégómans
|
laugardagur, nóvember 08, 2003 Ég hef komist að því að ég öryrki. Ekkert spaug! Ég þreytti lokapróf í enskum bókmenntum í ENS 503 en það próf var um 90 mínútur. Hægri hendin á mér entist varla í 50 mín. og ekki skánaði skriftin eftir það. Eftir strætóslysið margfræga miðvikudaginn 16. sept. 2002 kl. 16:10 í vagni 140 (vagnstjóra skal láta ógetið) hefur hægri úlnliður ekki virkað sem skyldi. Mig beinlínis verkjar í hann undir álagi og ekki hefur litli putti það gott. Hann hreyfist ekki alltaf eftir pöntun. Annars fór það ágætlega með prófið. Ég fékk að ljúka einhverjum hluta munnlega þegar allir voru farnir og ég ekki nærri búin að klára. Allt prófið var frekar klaufalegt sökum óskiljanlegrar skriftar og fljótfærni almennt. Ætli maður verði ekki að kveðja níu-tíuna bless. STRÆTÓ BS... JÚ VILL PEI FOR ÞIS! ... djöfull ætla ég að mjólka tryggingarkerfið.. djö.. |Dagga| 15:42 föstudagur, nóvember 07, 2003 . Punktur. Það er allt sem ég hef að segja í dag. |Dagga| 18:20 fimmtudagur, nóvember 06, 2003 Bloggferill minn er í hættu. Já, ég er engan veginn í sama formi og ég var fyrir nokkrum vikum. Bloggtíðni hefur einnig sigið niður í dýpstu lægðir og hvað er við því að gera? Ég veit satt best að segja ekki neitt í minn haus og ætla kannski bara að hætta að blogga...... Og svo er netheimurinn fullur af illsku í garð lítilla stráka..... |Dagga| 11:13 mánudagur, nóvember 03, 2003 Kórpartí, fimbulkuldi og svartir plastpokar Magnaðir hlutir hafa gerst undanfarna daga. Not. Hinsvegar má alveg rekja þá hér. Það sem ber hæst er ábyggilega kórpartíið sem haldið var á laugardaginn var. Það var ótrúlegt; allavega í styttra lagi. Gestgjafi (sem var nýr kórfélagi) hafði ekki gert sér grein fyrir því að þegar tæplega 90 hressir kórmeðlimir koma saman verður hávaði. Ekkert var samt brotið og bramlað, held ég, nema ein hilla sem mér sýndist ekki vera ónýt. Þó var einn ónefndur kórfélagi með uppsölu en hún var þrifin upp. Húsið var tæmt eftir altaatriðið kl. 1:30 en þess má geta að allar bjórdósir og hvert einasta plastglas var komið í svartan plastpoka eftir geysimikla tiltekt af hálfu dyggra kórfélaga. Eftir á að hyggja finnst mér kórinn hafa brugðist ágætlega við kvörtunum húsráðanda (kl. 12 leit allt út fyrir að partíinu væri lokið). Ég bara vona að þetta smámál verði ekki til þess að kórpartíin leggist niður. Annars voru atriðin ágæt. Tenórar tóku af skarið og fluttu dágóðan leikþátt um Bass-Andrann. Verí gúd. Sópranar lofuðu góðu en of mikil drykkja hjá sumum setti strik í reikninginn. Sungið var dægurlagið "Hey Mickey" þar sem "Bassi" kom í stað Mikka. Ég sagði Tenór. Bassar voru í tjúllinu enda ætluðu þeir að sýna okkur einhverskonar vídjó, en þeir höfðu þá tekið yfir herlegheitin. Ýkt púkó. Þess í stað fengum við að sjá tvíleik Andra Egils og Jónasar sem var fínn. Altar voru ömurlegar. En það sem þær sungu um var sosum alveg rétt. Sópraninn er falskur og allir að syngja ofaní hvora aðra. Því miður. |Dagga| 18:36 |