daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



föstudagur, nóvember 21, 2003  

Herra Ísland og Bachelor

Ég hef ekki horft á sjónvarp í margar vikur. Ástæður fyrir því eru nokkrar en ætli það sé ekki bara yfirgengilegur dugnaður sem hefur orðið til þess. Not. En svona í virkeligheden hef ég ekki fylgst reglulega með neinum þætti í margar vikur og mér líður ekki par illa. Svona næstum.

Ég hef nefnilega fylgst með The Bachelor í smátíma. Horfi reyndar bara á endursýningar á sunnudögum en það er alveg sama. Ég er húkt. Versta sjónvarpsefni allra tíma (fyrir utan Á milli himins og jarðar með Steinolíu) hefur kallað á mig í nokkrar vikur og ég held að það verði ekki aftur snúið.

Í gærmorgun fór móðir mín í heimsókn til London á besta tíma í heimi. Ef ég væri hryðjuverkamaður myndi ég sannarlega nota tækifærið og dúndra einni sprengju á Bush&Blair. Allavega, þá var maður einn um sjónvarpstækið og þá gat ég bæði horft á Bachelor og Herra Ísland í einu. Ákveðinn aðili sem var við lestur inni í herbergi var skiljanlega fyrir vonbrigðum með hegðan mína enda er sjónvarpsáhorf af þessu tagi ekki til fyrirmyndar.

En það fór sem fór, Andrew Firestone valdi XXXX sem á eftir að hirða hjólbarðaauðinn af honum, nema hann hafi e.t.v. gert kaupmála. Kannski er það skylda? Gunnlaugsbróðir vann Herra Ísland og asnalegri keppni hefur ekki litið dagsljóðið í langan tíma. Þetta er ekki karlmannlegt í fimm mínútur, enda aukatitlar á borð við "Oroblu-herrann" ekki til að hrópa húrra fyrir. Svo var Nói-Siríus að gefa nammi og ég veit ekki hvað og hvað. Gripasýningar og ekkert annað. Ég fæ velgju.

Síðan voru þetta bara litlir stráklingar í Next-smóking með sixpack og gel í hárinu. Ekkert sérlega sjarmerandi... á einn betri...

|Dagga| 15:34


miðvikudagur, nóvember 19, 2003  

Um neglur og nag

Ég er ein af þeim sem er krónískur nagari. Verst er ég um það leyti sem ég les mikið og stress er í hámarki, eins og t.d. um þessar mundir. Ekki aðeins fer þetta alveg ferlega illa með tennurnar, þá líður mér sjaldan eins illa og þegar ég er með flagnaðar, ljótar og ójafnar neglur.

Einusinni hætti ég að naga. Skömmu fyrir fermingu ákvað ég að hætta öllu kjaftæði og lét neglurnar í friði. Að mestu leyti. Þumalputti og litlifingur sluppu ekki undan nagi og því var ég með langar neglur á þremur puttum við fermingu; vísifingri, löngutöng og baugfingri. Til að toppa herlegheitin smellti ég bláu naglalakki plús gullglimmeri ofaná. Alveg í stíl við Monicu Lewinsky kjólinn minn, sem var dökkblár flaueliskjóll.

Síðar um sumarið duttu öll höft niður fyrir sig og ég byrjaði aftur að naga. Og hef ekki hætt síðan. Hvað gera bændur nú? Ekki langar mig til að halda helvítis naginu áfram......

|Dagga| 13:37


þriðjudagur, nóvember 18, 2003  

Grein grein grein greeeein

Ég á grein á pólitíkinni í dag. Umfjöllunarefnið er alveg gífurlega frumlegt og nýtt af nálinni í íslenskri þjóðmálaumræðu. Not. Æj skoðið bara.

|Dagga| 14:36


mánudagur, nóvember 17, 2003  

Öryggissvið

Z - gildið af 99% öryggissviði er 2, 75 og Z - gildið af öryggissviði 90% öryggissviðs er svona 1,96......

Stærðfræði 313 rúls.

|Dagga| 12:29