daria * blogg hégómans
|
föstudagur, janúar 16, 2004 Meistarinn og Margaríta Fór í gær í fylgd ástmannsins í leikhús á téð leikrit. Mér finnst alltaf svolítið gaman að koma í Hafnarfjarðarleikhúsið því uppröðun stóla er aldrei eins. Þetta býður upp á marga skemmtilega möguleika, auk þess sem að áhugamannayfirbragðið er ríkjandi. Ég hafði druslast til að lesa bókina í haust, óafvitandi að hún yrði tekin til lesturs í ENS4B4. Útkoman var alls ekki slæm, en fyrir þá sem ekki hafa lesið bókina er þetta torskilið, eflaust. Þrjár stjörnur, jájá. Ég get ekki hamið mig, verð að tjá mig um ædol. Ef Anna Katrín vinnur þetta þá er úti um íslenska poppmenningu. Takk. AArgh.... verð að fara fyrr í rúmið á nóttunni. Háttatímastandardinn er svona um 2 a.m, síðan er sofið til 7:30, vanalega framyfir ásettan tíma... þetta kemur niður á mér á kóræfingum, sjitt hvað ég er að krepera hérna í þessari "5 mínútna pásu". Hún hefur enst í 15 mínútur og mig langar heim að leggja mig. Fyrirgefið hvað ég er leiðinleg í augnablikinu - ég ætla að fara í skjaldböku. :S |Dagga| 17:05 miðvikudagur, janúar 14, 2004 Einn tveir þrír fjór, Afríka er ansi stór........... Ahh. Miðvikudagur. Dagurinn sem vill vera fimmtudagur en er svo margfalt auðveldari en þriðjudagur. Eða eins og Sigga og Grétar sögðu: "Ég þoli ekki mánudag, en skána strax við þriðjudag." But it´s friday I´m in love... Mamma er að yfirgefa heimkynni sín og ég verð við stjórn. Ég er að pæla í að læsa Steinunni inni í herbergi og henda mat til hennar í gegnum skráargatið. Þetta er ekkert djók. Nú er ég farin að hlakka allverulega til sumars og fagna hækkandi sól. Mamma spurði mig í gærkveldi hvort sjúklingurinn ég ætti nokkuð að hætta ser í bakpokaferðalag; ég þagði. Eftir að hafa borið fartölvu á herðum mér heila önn ætti ég að meika bakboka. Eitt að lokum: You are going to Marry orlando Bloom. He will always treat you right and is very romantic. He will do anything for you. He is very polite and has deep brown eyes and is very good looking (which is another plus!). He can make anythind cheesy look really good (like sliding down stairs on a shield shooting arrows or wearing pointy ears for example). Congrats!! Which male celebrity are you going to marry? (10 results that have pics!) brought to you by Quizilla Múha. Orlando Smorlando. Hann heitir bara Legolas!! |Dagga| 13:23 mánudagur, janúar 12, 2004 ÉG HATA SPÆDERKAPAL! Tveggja tíma eyða, lögfræðibók, drifkraftur og lærdómsfús ég - Spæderkapall. Spæderkapall vinnur. Ég ætla aldrei aftur í spæderkapal svo lengi sem ég lifi. Helstu fréttir dagsins eru þær að ég borðaði banana áðan. Reyndar bara hálfan, en þrátt fyrir það verð ég að fá smá kredit fyrir dugnað. Hingað til hef ég stært mig af því að vera svo ómatvönd að ég get lagt mér næstum allt til munns utan banana og spergils. Nú er bananinn í höfn og ekkert því til fyrirstöðu að ég fái mér aspasrækjurönd í kvöldmat. Ohj nei samt. Heitast í bænum: Dýrin í hálsaskógi. Þetta leikrit er sko sannarlega skemmtilegra en einhverjar hundamyndir í bíó.... Helgarpabbar allra landa sameinist og farið með grislingana í Þjóðleikhúsið - þið munið ekki sjá eftir því! Er þetta leiðinlegt dylgjublogg? Já, því HELVÍTIS SPÆDERKAPALL HEFUR HRIFSAÐ LÍFIÐ ÚR LÚKUM MÉR! |Dagga| 15:31 |