|
daria * blogg hégómans
|
|
laugardagur, febrúar 14, 2004 Stress. Ég er andskotans letingi, eins og þið vitið kannski flest. Eftir að hafa prókrastineitað ýmis verkefnum vikunnar kemur það niður á Laugardagstjútti. Þurfti að neita skemmtikvöldi with my girlfriends rétt í þessu. HELVÍTIS FÉLAGSFRÆÐI! HATA ÞIG! Og líka þig, aumingjalögfræði. Valentínusardagurinn er í dag. Hann er kjánalegur. Meira svona Single-Awareness day hjá einhleypum heldur en dagur elskenda. Ætti fólk bara að vera skotið í hvort öðru þann 14. febrúar? Nauts. Nú langar mig til að kaupa mér föt. Helst með blómum á. |Dagga| 21:42 miðvikudagur, febrúar 11, 2004 Morgunbænin Elsku Guð/Tao/Michael/Jesú Ég heiti Dagga og er 19 ára. Miðillinn minn hefur sagt við mig að ég sé alveg svakalega gömul sál og eigi allt gott skilið og sé búin að ganga í gegnum margt á margra lífa skeiði. Þessvegna finnst mér að ég eigi skilið að fá u.þ.b. 500.000 krónur til eyðslu í Urban Outfitters. Ég yrði hamingjusamari manneskja og ég LOFA að fara til N-Kóreu með mat handa milljón börnum og koma Kim Young Il fyrir kattarnef. Ég bið ekki um mikið. Takk fyrir. Hljómar mjög sannfærandi, finnst mér altso. Ég veit ekki um ykkur, en eftir að ég sá Ísland í bítið í morgun er ég ekki alveg viss um að foreldrar landsins vilji láta Charlie Stripp kenna börnum sínum á Go-Kart bíla..... allavega er þetta fyndið. |Dagga| 08:38 þriðjudagur, febrúar 10, 2004 Gleðidagar í nánd Er það bara ég eða finnst öðrum veðrið úti æðislegt? Þetta er a.m.k. frábært gæsaveður. DV verður æ betri fjölmiðill með degi hverjum. Fyrirsögn gærdagsins hljómaði eitthvað á þá leið: ÍSLENSKUR HOMMI KEPPIR Í JÚRÓVISJÓN! Umdeild fyrirsögn og hneykslanleg mjög. Eða hvað? Persónulega er ég ekki á þeirri skoðun að Tómas Þórðarson sé íslenskur; vissulega á hann íslenskan föður og talar bjagaða íslensku en maðurinn hefur aldrei búið hér og ég leyfi mér að álykta á þá vegu að hann telji sig fyrst of fremst danskan. Allt röfl um að hann sé Íslendingur er ómálefnalegt. Hálfur íslendingur - já. Fyrst og fremst Dani - svo sannarlega. Aftur á móti verður orðalag fyrirsagnarinnar cheesy um leið og farið er að draga hommatal inn í þetta. Hommi er hann vissulega, m.a.s. á hann sambýlismann og fer ekki leynt með það. En afhverju þurfti Mikael Torfason að tala um kynhneigð Tómasar? Er umsögnin móðgandi og hneykslanleg? Eiga ekki samkynhneigðir að vera stoltir af kynhneigð sinni? Jú, en það er ekki málið. Mikael er að sjálfsögðu ekki smekklegast maður á Íslandi og fyrirsögnin kom ekki á óvart, svei nei. Ætlunin var að hneyksla hómófóbíska Íslendinga, til hamingju. Illugi Jökulsson er passífasti ritstjóri allra tíma og hefur að mínu mati ekki verið að gera það sem hann getur best. Áður en ég biðst fyrirgefningar á bloggleti vil ég koma því á framfæri að ég ætla á næstu dögum að flytja búferlum til N-Kóreu og gefa sveltandi börnum að borða. Fréttir gærdagsins slógu mig of mikið. |Dagga| 12:53 |