|
daria * blogg hégómans
|
|
föstudagur, mars 19, 2004 Sæludagar í Smáranum Ég fékk fréttirnar á Kaffibrennslunni í gær. Við Sandra og Vigdís æptum saman í 5 mínútur, drukkum svo aðeins meira kaffi, og æptum meira. Þá var ég búin að fagna nóg og fór að undirbúa huggunaraðferðir fyrir Hjaltann. Það reyndist vera óþarfi, því hann tók tapinu eins og hetja og fór ekkert að gráta. Síðan fór minn maður á fund þeirra vina sinna og var víst stemningin góð þar á bæ. Mér kom sannarlega á óvart, hvað MR-ingar voru mikil séntilmenni í lok viðureignarinnar, þó sum gullkornin hafi verið meira en skondin. Kúdós, strákar, kúdós. Skemmtilegt þykir mér að sjá gjörvallt samfélag MR-bloggara fyrr og síðar vakna til lífsins á Molunum. Herra Kisi hérna kemst listavel að orði í pistli sínum. Síðan vil ég biðja lesendur mína afsökunar á því að hafa bloggað um keppnina. |Dagga| 13:47 miðvikudagur, mars 17, 2004 Blíðskapar blíða Í góðviðrinu eyði ég tímanum á vinnustaði mínum, Bókasafni MH, lesandi þessa bók. Mjög góð, en ég held að ég sé nú búin að fatta ýmislegt, verandi aðeins komin inn í miðja bók. Æj só vott... bókin er svo margt annað en krimmi... gasalega skemmtileg. Ég var hinsvegar að gera merka uppgötvun. Stimpli maður nafn mitt inn í leitarvélina Google má finna skemmtilegt stöff í myndaleitinni. Annars vegar birtis létthallærisleg mynd af skjálfri mér, og óprúttnum þjóðarleiðtoga hins vegar. Sjitturinn! |Dagga| 11:18 þriðjudagur, mars 16, 2004 Dagbjört Þingkona? Undanfarið hafa allmargir þingmenn Samfylkingarinnar í Suðvestur-kjördæmi verið fjarverandi af þingi. Þórunn er í barneignarorlofi, Kata Júl er á spítala og ég veit ekki hvað og hvað. Í kvöldfréttum gærdagsins sá ég glitta í 3. varaþingmann listans - Jón Kr. Óskarsson, en þá sat þessi fjörgamli aldursforseti listans í þingsal. Skemmst er að segja frá því að hann skipar 7. sætið,en sjálf vermi ég 12. sætið, og þá þurfa aðeins 5 menn að hverfa frá skyldum sínum til að ég komist á þing. Spurning um að taka eina hressilega laxerolíutörn á liðið... ein matskeið í morgunkaffi hvers og eins ætti að gera gæfumuninn. Múha. Vonandi lesa þau ekki þetta blogg. Æj, ég má víst útiloka möguleika minn á Stórpeningaorðu í ár. Rats. |Dagga| 11:57 |