daria * blogg hégómans
|
föstudagur, október 08, 2004 Viltu með mér vakí nóóótt... Mig langar til að horfa á kappræðurnar í nótt. Sýnt verður beint frá herlegheitunum á Ztody 2 í nótt og andskotinn hafi það, Kerry verður að koma með Sádasprengjuna í kvöld. Ég fylgist grannt með þessari síðu hér, hún er mögnuð. Hinsvegar spilar það inní að þurfa að vakna kl. 6:00 á laugardagsmorgninum til að fara í hyttetúr. Rafmagnsleysi, gin og tónik, kassi af Elitesse, Lagasafn og glósur úr kröfurétti er alveg málið. Mikið óskaplega hefur þessi frétt fallið í kramið hjá Styrmi. Dagur Íslands, ég bara trúi þessu ekki! Það er satt, hinn Norræni kynstofn er öllum æðri! Kannski verður ÍSLAND umræðuefni kappræðanna? Gvuð, Bjössafréttir myndu tryllast í fréttaumfjölluninni og birta aukarit með mánudagsblaðinu. Of margir eiga afmæli í Október. |Dagga| 11:23 miðvikudagur, október 06, 2004 Ómenningarverðlaunin Hér í fríminútunum eru stúlkur í miklum samræðum um hestanauðgarann frá Þorlákshöfn. Ég hlusta á af mikilli athygli enda vita þær meira um málið og ég er álíka jafn hneyksluð og þær. Mér velti því hinsvegar fyrir mér hver það var sem lak í DV. Einhver hefur sennilega hugsað sér gott til glóðarinnar og er þessa stundina í Olís-skálanum á Þorlákshöfn, alveg í vandræðum með að eyða þessum fimmtánþúsundkalli sem hann fékk í verðlaun. Jahérna hér, og sem M12 áskrifendur stöðvar 2 geta mæðgurnar í Gullsmára fengið DV ókeypis. En okkur dettur ekki í hug að hringja símtalið. Hvað er þetta annars með menningarverðlaun DV? Nói Albinói var víst að vinna eitthvað, hundrað árum eftir frumsýningu. Ég legg til að menningunni verði sópað undir teppið og einhverskonar stjörnuverðlaunum verði komið á laggirnar Kategoríur á borð við „Ljóti kallinn/konan 2004“,„Besta fréttasnúpið“, „Stígvél ársins“, „Meiðyrðafyrirsögn ársins“ að ógleymdri Lýtaaðgerð ársins! Þarna yrðu stjörnur eins og Hestanauðgarinn frá Þorlákshöfn, Einar Ágúst, Kattakonan, Katrín Júlíusdóttir, krakkarnir úr heyrnleysingjaskólanum, Hnífakonan, Sverrir Stormsker og kannski myndu Ragnheiður Elín Clausen og Þorsteinn Davíðsson keppa við Heiðveigu og Grétar um „par ársins“. Festívitetið yrði að sjálfsögðu haldið á Múlakaffi og öryrkjar fengju frían kokkteil með bjór (gegn framvísun skírteinis). Ástþór myndi mæta fullur með myndavél. Ég myndi mæta. |Dagga| 09:25 þriðjudagur, október 05, 2004 Lítil börn og pólitík Mér bauðst að passa mína sjö ara gömlu tvíburabræður í gærkveldi á meðan móðir þeirra fór og hlýddi á þingheim. Maður hefði haldið að litlir drengir hefðu ekkert sérlega gaman af alþingisútsendingum, allavega vissi ég ekkert leiðinlegra á þeirra aldri. En viti menn, drengirnir sátu sem fastast fyrir framan skjáinn með niðurskorna eplabita í skál og reyndu að koma auga á móður sína. Ókei, fair enough, þeir höfðu mótíf. En síðan byrjaði ég að spyrja þá um þingmennina. Stórasystir: Í hvaða flokki er Halldór Ásgrímsson? Hlöðver Skúli: Framsóknarflokknum Stórasystir: Hvað heitir þessi kall? Hlöðver Skúli: Þessi feiti? Magnús Nói: Atti Kitta Gau. Stórasystir: Og í hvaða flokki er hann? Magnús Nói: Samfylkingunni? Magnús Nói: Hvað heitir eiginlega þessi? Stórasystir: Öh, ég held að þessi heiti Þór Hlöðver Skúli: En hvar er eiginlega Dúddi, er hann ekki í Samfylkingunni?? Stórasystir: Dúddi í Með allt á hreinu? Hann er ekki þingmaður, hann er leikari. En samt í Samfylkingunni. MN&HS: Óó. Já, kæru vinir. Atti Kitta Gau og Dúddi eru í miklu uppáhaldi hjá drengjunum, enda stórskemmtilegir karakterar þar á ferð. Eftir þessa smásessjón var ekki hægt að stöðva fróðleiksþorstann og heimtuðu fleiri spurningar um þingmenn og höfuðborgir Asíu. En ég varð að játa mig sigraða þegar þeir báðu um einhverskonar skordýra- eða fiskaspurningar. Þeir hafa pótensjal, get ég sagt ykkur. |Dagga| 11:11 |