daria * blogg hégómans
|
þriðjudagur, maí 03, 2005 Two down - three to go... Ojæja. Þetta gekk sosum vel, en er samt með efasemdir. Finnst ég ekki hafa skrifað alveg nóg, þrátt fyrir að hafa fyllt út 10 bls. og skrifaði sem fyrr eins og 7 ára barn. Og stoppaði ekki - allan tímann. Urghhhh.... ég er orðin svo vitlaus! Einusinni var ég klár og gáfuð, nú er ég vitlaus og heimsk. Ef ég fell í þessu kýli ég einhvern aftur! Og fer að háskæla. En djöfullinn hafi það, ég var vel lesin! Það bara sannast einusinni enn að ég þarf lengri próftíma, og ég er viðbjóðslega léleg í að svara prófspurningum! Æ andskotinn djö djö djö. Já, ég veit, þetta er ein skemmtilegasta færsla frá upphafi! |Dagga| 13:08 sunnudagur, maí 01, 2005 Próflestur er hreint helvíti á jörð Jæja börnin góð. Nú fer að styttast í stjórnskipunarréttinn á þriðjudag og verður þá glatt á hjalla. Eða allt að því, þar sem 11 dögum síðar er sifja og erfða - en þá verður stuð. Ég held að ég þurfi að taka bjartsýnispakkann á þetta eins og um jólin, þ.e. hvernig sem fer, hvort sem ég klaufast til að borða prófið í stað þess að leysa það, eða verð rekin út fyrir prófsvindl, ætla ég að skemmta mér svohooo mikið í lok prófa. No shit. Það þýðir: Bíóferðir, kaffihús, gönguferðir á fjöll á blíðskaparsumarkvöldi, hjólaferðir, lestur dýrindis ruslbókmennta, Júróvisjón og vídjógláp. Mig langar til að fara að gráta þegar ég hugsa um gleðina. Er vægast sagt búin að vera klemmd í dag. Svo virðist sem dugnaðurinn í vetur er ekki búinn að skila sér. Í bland við afspyrnulélegt raunhæft verkefni og stúdentapólitík hefur lærdómurinn svo sannarlega fengið blómstrunarleyfi og mörgum mörgum mörgum tímum eytt í lestur, en afraksturinn ekki sest á harða diskinn. Sem er ver og miður. Get ekki annað en sífellt hugsað til þeirra sem eru búnir að standa sig svo vel - og jafnvel eytt töluvert minni tíma í lestur. Og því er ég ekki svo viss um hvort ég næ stjórnskipunarréttinum. Mér finnst ég vera með þetta nokkurnveginn klar parat - en samt. Uhu. Hef verið í svolítilli sjálfsvorkunn og svartsýni (Hjalta til óstjórnlegrar gleði og skemmtunar) og tekið margar tarnir í „lögfræði er ekki fyrir mig, ég vil fara í stjórnmálafræði en ég meika ekki hannes“ og „Ætla að fara til Danmerkur í blaðamannaskóla“ o.s.frv. En ég þarf bara að telja dagana. Það er ótrúlegt hvað lærdómsdagurinn líður hratt, eftir allt saman! En já. Mig langar til að vera útskrifuð og hafa tíma til að fara á kvikmyndahátíð. Svona eins og þessi! $%#&&="! (og já, ég veit. þarf að uppfæra þennan linkalista...) |Dagga| 15:17 |