daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



miðvikudagur, ágúst 10, 2005  

HÓPEFLI

Bojkottum KEA-vörur. Ekkert Bananasplittskyr, Smúþídrykkur eða Frissi Fríski.

Gaman þegar svona CEO-menn búa til lög handa sjálfum sér. Hver þarf að virða almannalög? Ekki ég, því ég vinn hjá KEA. Ég pant vera hafin yfir lögin þegar ég verð stór.

|Dagga| 15:23


þriðjudagur, ágúst 09, 2005  

NEEEEEEEEEIIIIIIII!!!!!


Ó nei!!!

Ykkur finnst þetta kannski ekki baun merkilegt, en ég er að missa ad helvíti góðu partíi. London kallar um sömu helgi.

Þetta þýðir aðeins eitt: Ég mun gera heiðarlega tilraun til gjaldþrots í HMV og Boots í sárabætur. Og borða líbanskan mat.

Hvílík örlög. Ég er í alvöru mjög mjög mjöög spæld yfir þessu. En - málefnaþingið verður helgina á undan, you win some, you lose some. Ef maður ætlar að ná skaðabótarétti ætti maður víst huga að jöfnum og þéttum lærdómi yfir önnina. Pleh.

Minningin um skelfinguna sem greip mann heljartökum 2. nóvember 2004 er dágott eldsneyti. Drífa sig áfram á hörmungunum. Sem skiluðu helmingi meiri gleði, ef út í það er farið.

Kannski fjallar þessi kvikmynd um rannsóknir á germönskum lögum og stjórnarhefðum? Það skyldi þó aldrei vera. Einhvernveginn held ég samt að svo sé ekki og myndin sé slæm.

Sendum þessu fólki góða strauma. Mér sýnist sem Alda litla sé búin að standa sig eins og hetja, enda ekki öllum litlum stelpum auðvelt að fara til útlanda í hjartaaðgerð.

Og Pé ess. Var að uppfæra tenglana. Meginreglan er að vanda sú að hætta að tengja á blogg sem ég les aldrei og linka ekki inn á mig. Ef þið takið eftir einhverri vöntun, látið mig vita og ég laga. Einnig ef eitthvað er ekki í lagi. Þakka líka fyrir sig.

|Dagga| 13:27


mánudagur, ágúst 08, 2005  

Akurgerði 44

Skötuhjúin úr Kragakjördæminu hafa flutt sig um set. Í lítilli kytru austur í bæ hefur nú ungt par farið í Ikea, keypt filtteppi, lagað krana og sett upp Billy hillur. Útkoman er alls ekki sem verst, og lærdómsnæðið er par exellans. Auk þess er heimilistækjakosturinn til fyrirmyndar. Hraðsuðukannan Hanna, Samlokugrillið Melissa, Kaffikannan Kristel Elfa, Tekannan Eva og Brauðristin Yúrí Gagarín hafa það þrælgott í bláa eldhúsinu. Kranarnir eru eitthvað lekir, en vottþehell. Svo kemur sófi í vikunni, mamma arfleiðir okkur að ýmsu eftir okkar flutninga og ég veit ekki hvað og hvað. Eina sem vantar er hugsanlega ísskápur, það væri allavega ekki verra.

Og sjónvarp. Hnuss. Sérvitringshátturinn á sumum... En leigjandinn er þrælskemmtileg eldri kona sem er með heyrnina í veikari kantinum, og ég gat hlustað á Forsvar í gær. Vinalegt bara.

En já. Partí eftir próf, partí eftir próf. Það er gaman að fara í IKEA. En plís, ekki spyrja mig hvort ég sé flutt að heiman. Ég veit það ekki sjálf.. :S. En varla er nú hægt að segja að ég eigi bágt!

Fór í sjálfstæðispartí í Valhöll um helgina. Það hef ég einusinni gert áður, og var bara svolítið skemmtilegt. Eiginlega er þetta tvíþættur tilgangur hjá mér: Mannfræðirannsóknir og tilraun til að skapa hefð milli partíflakks á meðal ungliðahreyfinganna. Við eigum nefnilega að venja okkur á að djamma meira saman. Allavega, þá var það þetta venjulega; ókeypis bjór og pulsa, lítil börn að sötra bjór. Kvenfólkinu mátti skipta í eftirfarandi flokka:

1) Kærustur stráka í sjálfstæðisflokknum
2) Kærustur lítilla stráka sem koma og fá bjór
3) 3 stelpur í sjálfstæðisflokknum. Þær serveruðu bjór og pulsur.
4) Inga Jóna Þórðardóttir
5) Ég.

Stelpurnar að vanda almennt fáklæddari en gengur og gerist. Sumar hverjar m.a.s. enskumælandi. Sjálf var ég í lopapeysunni góðu. Sérlega var skemmtilegt að verða vitni að því þegar frúin í lið 4 auk eiginmanns brosti góðlátlega til mín, og hefurán efa verið glöð með aukningu á menningarlegri breidd sjálfstæðisflokksins, stelpurnar komnar í lopapeysur. Eða þannig.

Og réttarsagan gengur bara svona líka ágætlega! Mössun!!

|Dagga| 09:19