daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



miðvikudagur, ágúst 31, 2005  

Útborgunardagur

Ég er búin að hanga konstant á reiknistofunni í dag. Mig langar nefnilega að sjá launin mín áður en ég yfirgef þennan vinnustað þetta sumarið, en það gerist á eftir. Svolítill tregi, en ég hlakka til að komast í skólann. Ble ble ble.

En ég á ekki reikning í mjóddinni, heldur í kringlunni, sem gerir það að verkum að ég kíki alltaf á reikning drengs sem hefur sama reikningsnúmer, en ekki sama banka. Sem þýðir að ég fæ alltaf nett áfall þegar ég sé innistæðuna og held að ég hafi verið rænd. Þetta hefur gerst núna fimm sinnum í röð. Ég þarf að komast í frí.

|Dagga| 14:45


þriðjudagur, ágúst 30, 2005  

Jíbbí jei

Blóðnasirnar svínvirkuðu og skiluðu dúxun. Sem hlýtur að teljast stórfenglegt. Annað skipti sem ég afreka slíkt í lagadeild, hananú. Reyndar voru bæði prófin lágkúruleg upptökupróf en mér er alveg sama. Ætla mér að það verði ekki of oft sem það á eftir að gerast til viðbótar, þ.e. dúxun. Var reyndar bara með 7,5, en meðaleinkunnin þá orðin um 7.1, sem hlýtur að teljast alveg ágætt eftir fyrsta ár. Svo er það fílan eftir.


En hvað í andskotanum er á þetta að þýða?? Mér þætti ekkert sjálfsagðara en að sjá nafn unnustu viðkomandi á svona síðum. Eða gefa henni síðu kannski? Hneyksli.

En póstmóderníska bloggið hefur munað fífil sinn fegurri.

|Dagga| 17:09


mánudagur, ágúst 29, 2005  

Persónuleikapróf eru glötuð, ég veit...

en þetta virðist vera eitthvað mandatory dæmi:




Annars er bíósumarið búið að vera svo lélegt að ég get varla trúað því. Batman Begins, Hörbí, Fantastic Four, Michael Bay og eitthvað álíka rusl. Hryllingsmyndir með vonlausum ljóskuprotagonistum. Vonlaust. Sin City var jú alveg þolanleg, en ekkert mikið meira en það. Mér finnst það tíma- og peningasóun að fara í bíó í dag. Miðað við gullið sem býr á myndbandaleigum bæjarins, getur maður ekki farið á Hollywoodmyndir með góðri samvisku.

Mér finnst það skítt, að á meðan ég er í vorprófum fyllast bíóhúsin af einhverju evrópsku gæðadóti, og svo þegar ég kemst í sumarfrí og eignast pening hef ég ekkert getað farið að sjá! Leim sjeim. Og svo á maður mann sem vill ekki hafa sjónvarpið sitt heima hjá sér, og tölvan mín hjá mömmu sem er útí sveit... erfitt líf. Að hlusta á útvarpið ein á kvöldin er yfirleitt ekki góð skemmtun. Alls alls ekki. En ég horfði hinsvegar á afrakstur heimsóknar minnar í Norræna húsið í gær. Alfons Åberg. På svenska. Og það var svo skemmtilegt. Vil samt sjónvarp.

En ein mynd höfðar frekar mikið til mín sem er nú komin í bíó. Nýja Bill Murray-Jim Jarmusch afkvæmið sem gæti orðið alveg ágætt - Broken Flowers.

Mér blæðir bókablóði. Mér finnst námsbækur engin helvítis fjárfesting. Allt of djöfulli þungt helvíti. Andsk.

|Dagga| 11:31