daria * blogg hégómans



Ýmislegt

MSN netfang: dagga_h(hjá)hotmail.com
Senda mér smöss..
Myndasíðan


Tenglar og stallsystkini

Sandra Wish
Vigga
Anna Pála

Ýmsustu menn
Aðalsteinn
Alex Simm
Ari Eldjárn
Arnaldur
Atli Freyr
Atli Týr
Ágúst Flygenring
Baldvin
Bjarni Már
Eiki
Erlingur
Geimveira
Guja
Gunnhildur
Gunni Kerfiskall
Hallur
Hákon Skjenstad
Kári Túl
Kínverska mafían
Magga
Nanna súpersjef
Orri Té
Óli Gneisti
Raggan
Sigga
Sindri
Sibba
Snæbjörn
Stefán P
Steini Tík
Steinunn systir
Svan
Svanur
Svanhvít
Sveinbjörn
Ugla
Vala Svala
Þórdís

Röskvan
Aggi
Alma
Ásþór
Atli Bolla
Erna María
Eva Bjarna
Eva María
Dagný
Fanney Dóra
Garðar
Grétar
Gussan
Kári
Kjallarasystur
Lára Kristín
Magnús Már
Tinna Mjöll
Sigurrós
Sólrún Lilja
Steindór
Stígur
Torfi
Vala Bé Eggerts
Yngvi
Þórir

Jafnaðarmenn
Ágúst Ólafur
Bryndís Ísfold
Bryndís Nielsen
Brynja Bjarnfjörð
Grjóni Stólpi
Guðrún Birna
Hildur Edda
Jens Glens
J. Hjalti

Lagablókir
Arndís Anna
Ásdís Snævarr
Eva Baldurs"
Sara og co.
Snorri
Valdi
Þórhildur Líndal

Kaupthing bank Sirra
Sunna Dögg

Nýbakað og síðan í gær
Hildur Þóra
Jósef Ýmir
Dagur Orri

Hall of Shame
Hjaltinn minn

Pólitík.is
Evrópusamtökin
Bekkurinn minn
Silfur Egils
Sellan
SHA
Femínistar
Vinstri
Múrinn
Deiglan
Jamie Oliver
Michael Moore


Darían er skemmtilegt vefrit og gaman er að lesa hana. Hinsvegar er það sem Darían býr yfir prífat og persónulegt yfirráðasvæði Dagbjartar Hákonardóttur, stud. juris, sem kann ekki við að láta birta ummæli sem hér finnast í ritmiðlum óspurð. Leiksoppar klósettpappírsritanna eru vinsamlegast beðnir um að virða slíkt, sem og aðrir.

Arkífin



sunnudagur, janúar 25, 2004  

Slæm byrjun á vonandi ágætum degi.

Nú hef ég opinberlega hlotið nafnbótina Bókasafnsljóskan. Ég var að vinna mig upp í Bókasafnslögguna en éld að það sé alveg úti um hana. Fékk nefnilega frekar pirrað símtal áðan sem tilkynnti mér um að ég ætti að vera að vinna - og hálftími liðinn af vaktinni. Svona hefur nú aldrei komið fyrir mig, og mér líður hálf-kjánalega fyrir vikið. Asnalegt þætti mér þó ef ákveðnir vinnufélagar færu að erfa þessi misklíð við mig. Púnktur.

Þykir mér þó jafnvel leiðinlegra að þurfa að beila á kvikmyndatökudegi vina minna, þar sem ætlunin var að wrappa Klöru. Það tókst ekki, og þeir eiga í þetta skiptið inni hjá mér. Jájá.

Annars stefnir allt í það að þetta verði önn án heimalærdóms. Uss... framhaldsskólaleiði dauðans ásækir mig. Ég er algerlega að krepera á þessum menntaskóla.

(Neikvæðu bloggi lýkur hér)

Ví ví Mozart-tónleikar ví ví í kvöld ví!

|Dagga| 14:19


föstudagur, janúar 23, 2004  

Bjarne i den gule trøje...

Djöfull get ég ekki horft á handbolta! Ég sem hélt að við myndum bara vinna? Síðan hvenær voru Slóvenar eitthvað góðir í handbolta.
Eitt veit ég þó um Slóvena. Sú þjóð er hin ósmekklegasta í almennu fatavali og framkomu, sbr. klappstýrurnar síkátu sem brugðu á leik í hléum. Hrikalega ljótt. Þá skýtur upp í kollinum minning frá Austurríki á lúðrasveitamóti fyrir nokkrum árum síðan. Þar var meðal þáttakenda hljómsveit frá Slóveníu sem tók svona klappstýrustelpur með, sennilega til prýði. Þær voru í svona ruðum fötum með lestarstjórahatta og svona prik sem þær sveifluðu. Gasalega smart. Síðan var hljómsveitin sjálf í ljósbláum jakkafötum (stelpur voru í samlitum mínípilsum) og með rauða þverslaufu. Well, I guess you had to be there.

Jæja, nú er vikan senn á enda og ég hreykin að lýsa því yfir að:
a) ég svaf ekki einu sinni yfir mig þrátt fyrir nokkrar andvökunætur
b) skrópaði ekki í neinum tíma.
Vei, til hamingju ég.

Gasalega finnst mér hún Ingiríður litla sæt. Síðan sá ég í fréttum gærkvöldsins að Hákon krónprins, hinn stolti faðir, kvaddi fæðingarkrú sitt með handabandi og/eða kossi Áfram Skonsi! Ánægð með þetta, hann er svo asskoti almúgalegur orðinn. Hann er alveg í öðru sæti á Prinsar-sem-mér-finnst-svaka-sætir listanum. Á eftir Harry, of kors.

Og Anne Dorthe Michelsen er sko EKKI einhver Celine Dion! Hnuss..

|Dagga| 12:50


miðvikudagur, janúar 21, 2004  

Drærærææ... Ó hve ég elska Heimdall. Not.

Á þeirri mætu síðu Frelsi.is er einskonar fróðleikshorn sem ber nafnið „Vissir þú..?“. Það er nú uppáhalds dálkurinn minn, því þar er hægt að rekast á fróðleikskorn mörg. Í þessum dálki er nú verið að hneykslast á því að Ríkið starfrækir m.a. nefnd sem skipuleggur Dag íslenskrar tungu, nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og Tannverndarráð. Eða er ekki annars verið að kvarta undan því? Ég held það, enda samræmist annað ekki hugsjónum Hins Yfirnáttúrulega Frelsis.

Og hverjir ættu svosem að sjá um Tannverndarráð og Námsgagnastjórn, aðrir en ríkið? Ég segi ekki að ég sé mikið fylgjandi óhóflegs fjölda nefnda, enda getur slíkt farið út í öfgar eins og margt annað. Sum sannleikskornin eru ekki alvitlaus, t.d. eins og að um 400 milljónir renni til bændasamtakanna á ári hverju. Það er vitleysa og ég þarf ekkert að fara leynt með það að mér finnst landbúnaður á íslandi hálf-asnalegur og það er miklu sniðugra að sníkja styrki frá ESB. Það leysir allan vanda.

Æj Heimdellingar eru kjánar. Aftur á móti er nýjasti bloggari netheima enginn kjáni. Það er nefnilega minn ástkæri elskhugi, Hjalti Snær Ægisson.

Megi bloggletin aldrei verða honum að bráð!

|Dagga| 08:39